Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1993, Page 53

Læknaneminn - 01.10.1993, Page 53
kynhegðun íslendinga og hvort heilsusvemd í fonni frekíiri fræðslu skili árangri. HI. HEILSUVERND INNAN BÆJAR- OG SVEITARFÉLAGA Vatn, skólp og sorp. Bæjarkjarnar fóru ekki að myndast hér á landi fyrr en upp úr síðustu aldamótum. Landlæknir og héraðslæknar (nú heilsugæslulæknar) voru brautryðjendur í heilsuverndarmálum í þessum fyrstu þéttbýliskjörnum landsins. Þeir voru ötulir hvatamenn þess að komið yrði á fót vatnsveitu og því að sveitarstjómarmenn sinntu sorp- og skólpmálum bæjanna. Með nýjum lögum um hollusmvemd hafa heilbrigðisfulltrúar tekið að sér þetta efúrlit og segja má að hlutur lækna sé nú orðinn hverfandi lítill í þessum málaflokkum miðað við það sem áður var. Heilsugæslulæknar eiga sæú í heilbrigðisnefndum og taka þannig virkan þátt í skipulagi heilbrigðisefúrlits á vegum sveitarfélaga. Eitt aðalverkefm bæjar- og sveitarstjóma er enn sem fyrr að sjá bæjarbúum fyrir fersku og ómenguðu vatni, og losun á sorpi. Sorpmál hafa í raunimú verið í ólestri og það er ekki fyrr en nú á síðustu tímum að farið er að flokka soip og eyða hættulegum efnum og eiturefnum á viðunandi hátt. Iþróttalíf, útivera og tómstundir. Skipulag bæjarkjarna er einnig mikilvægt hvað varðar heilsuvemd. Má þar nefna hönnun göngustíga og hjófabrauta til þess að fækka slysum. Öflugt tómstundastarf fyrir börn og unglinga stuðlar tvímælalaust að mannvernd. Bygging íþróttahalla, sundlauga og hönnun skokkbrauta em allt þætúr sem skipta verulegu máli til að viðhalda heilsu og koma í veg fyrir sjúkdóma. Heitu pottamir í sundlaugum á Islandi hafa t.d. verið ‘Télagsmiðstöðvar” þar sem fólk hitúst á morgnana fyrir vinnu eða að loknmn vinnudegi. Slíkar samkomur hafa jafnvel komið í staðimi fyrir kráarlíf eins og stiuidað er í Breúandi með úlheyrandi bjórþambi. Atvinna. Eitt af aðalverkefnum bæjar- og sveitarstjóma er að sjá úl þess að í bænum sé öflugt atvinnulíf og atvimiuleysi í lágmarki. Undanfarin ár höfum við borið gæfu úl þess að halda atvinnuleysi undir 1% þegar það hefur verið um 4-5% í hinum Norðurlöndunum. Því núður hafa þessar tölur breyst á síðasúiðnum tveimur ámm þegar atvinnuieysið hér á landi hefur aukist í 4-5% og á sumum stöðum mun meira, en sambærilegar tölur á Norðurlöndunum hafa einnig hækkað í 10-20% (eins og í Finnlandi). Rannsóknir sýna að langvarandi atvinnuleysi leiðir úl aukins kvíða og þverrandi sjálfstrausts. Einnig fjölgar afbrotum og öðrum félagslegum vandamálum. Geðlæknirinn Caplan (21) hefur sérstaklega bent á ábyrgð forystumanna bæjar- og sveitarfélaga á að stuðla að fyrsta stigs heilsuvemd varðandi andlega vellíðan eða geðvemd. IV. HEILSUVERND Á HÓPUM, f SKÓLUM OG Á ÖÐRUM VINNlSrÖÐUM í skólum og á öðrum vinnustöðum er bæði auðvelt og nauðsynlegt að stunda heilsuvemd. Ilver vimiustaður (s.s. skólar, verksmiðjur, bankar, heimili o.s.frv.) liefur sína áhættuþætti. Viðfangsefni heilsuvemdar er því framar öðm að aúiuga hugsanlega skaðvalda, koma þeim á framfæri og leitast við að breyta til betri vegar. Skilmerki kembileitar Ef stunda á heilsuvernd hjá ákveðnum hópum þarf að gera það á markvissan hátt. Til þess að auðvelda slíkar aðgerðir varðandi heilsuvemd hafa verið samin skilmerki (criteria) sem æskilegt er að hægt sé að uppfylla að mestu eða öllu leyú ef rétúæta á slíkt starf. Til em margar tegundir slíkra skilmerkja (12), sem em þó svipaðar í gmndvallaratriðum. I heilsugæslunni hefur verið stuðst við ábendingar Frame og Carlson (22) sem em eftirfarandi: 1. Sjukdómurim (eða ástandid) sem leitað er að verður að hafa umtalsverð áhrifá lífsgœði og lífslengd. 2. Það verður að vera til viðunandi meðferð við sjúkdótnnum. 3. Sjúkdómurinn verður að hafa huliðstíma ( “latent” eða “asymptomaticperiod”). Greining og meðferð á þessum tíma verður að fœkka sjúkdómum og lœkka dánartíðni. 4. Það að uppgötva sjúkdóminn á huliðstíma verður að vera betra (hvað varðar lífsgœði og lífslengd) en að biða með meðferð þar til einkenni koma í Ijós. 5. Rannsóknaraðferðin sem notuð er til þess að uppgötva sjúkdóminn á huliðstíma, verður að vera einföld, örugg, ódýr og þjáningarlítil fyrir sjúklinginn. 6. Tíðni þessa ástands eða sjúkdóms verður að vera það há að hún réttlæti kostnað kembileitar. LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg. 51

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.