Læknaneminn - 01.10.1993, Síða 54
Skólaheilsugæsla. Áður fyrr lögðu
hjúkrunarfræðingar og læknar í skólmn megin áherslu
á líkamlega hreysti nemenda. Gerð var árleg kembileit
að duldum þvagfærasýkingum, hálsbólgum (eða
stórum hálskirtlum), ilsigi, lús o.s.frv. Nú er meira
farið eftir fyrmefndum skilmerkjum og því hefur
eftirht með líkamlegu ástandi breyst. Flestir líkamlegir
gallar uppgötvast í ungbameftirliti. Það er því ekki
líklegt að fleiri finnist í skólaheilsugæslunni. Hins
vegar hafa komið til nýrri áherslur, svo sem vamir eða
meðferð við einelti, vanhirðu og félagslegri
einangrun (23). Æskilegt er að heilbrigðisstéttir vinni
í nánu samstarfi við kennara, sálfræðinga og
foreldrafélög að þessum vandamálum.
Þeir þættir sem einkum ógna líkamlegri heilsu
skólabama og unglinga em slys, reykingar, áfengi
og önnur fíkniefni, kynsjúkdómar og
smitsjúkdómar. Af þessum sökum er fræðsla
mikilvægust auk bólusetninga gegn smitsjúkdómum.
Slys í skólum em algeng. Til þess að beita
markvissum forvömum er nauðsynlegt að atliuga
hversu algeng þau em í hverjum skóla og skoða hvort
hægt sé að greina ákveðnar slysagildrur eða þætti sem
leiða til slysa (mynd 7).
í Hafnarfirði em um 16 þúsund íbúar, þar af u.þ.b.
2700 nemendur í gmnnskóla. Á skólaárinu 1987-88
var gerð könnun á slysum í skólum bæjarins (24).
Niðurstöðurnar sýndu tíðni skólaslysa eftir aldri og
kyni og hvar slysin urðu. Slysatíðnin reyndist vera um
10 slys/100 nemendur. Tíðni slysa/100 nemendur óx
stöðugt frá sex ára til tólf ára aldurs en lækkaði aðeins
eftir það. Slysatíðnin var mun meiri hjá strákum en
stelpum. Svo virðist sem að hlutfallsleg tíðni slysa
(fjöldi slysa/hundrað nemendur) sé í réttu hlutfalli við
fjölda nemenda í skólum. Af því má draga þá ályktun
að ef of margir nemendur em samankomnir skapist
meiri órói innan hópsins sem leiðir til átaka eða annars
háttemis sem valdið getur slysum. Helstu slysstaðir í
skólum virðast vera leikfimissalirnir og skólalóðin.
Með nákvæmari athugun á orsökum slysanna var
hægt að greina vissar slysagildrur og fækka þeim. Má
þar m.a. nefna breytta íþróttakennslu í leikfimisal,
betri aðstöðu á skólalóð s.s. að gæta þess að fylla í holur
í malbiki á skólalóðinni, bera sand eða salt á skólalóðina
á vetuma þegar hált er, skrúfa föst mörkin sem notuð
em í knattleikjum þannig að þau detti ekki ef bömin
fara að klifra þar, vandaðri skíðaútbúnað í skíðaferðum,
nákvæmari fyrirmæli til kennara um að fara ekki með
bömin í skíðaferð í hvemig veðri sem er eða hleypa
Slys í skólum
1987 1988 1989 1990
Mynd 7. Tíðni skólaslysa í Hafnarfirði fyrir og eftir
fyrirbyggjandi aðgerðir.
óvönum á skíði í mjög þungu færi o.s.frv.
Tannvernd sem beint er að hópum byrjar fyrst í
mæðraverndinni, en síðan er lögð mikil áhersla á
þessa tegund heilsuverndar í ungbarnavernd og í
skólum. Við mat á tannheilsu er oft notað hugtakið
tamistuðull, en það er meðaltal skemmdra, tapaðra eða
fylltra (Destroyed, Missed, Filled) fullorðins- (T) eða
bamatanna (t). Samkvæmt rannsókn (25) sem gerð
var í Hafnarfirði árið 1985 var tannheilsu skólabama
mjög ábótavant (sjá mynd 8). Átak var gert í því að
auka fræðslu um tannvemd og að koma á flúorskolun
í skólum bæjarins eins og í flestum skólum landsins.
Sveitarfélögin tóku að sér að borga kostnað þessa
forvarnastarfs. Bömin fá nú reglulega flúorskolun
tvisvar í mánuði (skolað er með um 10 ml af 0,9 mg/
ml Natrium fluroid lausn í um tvær mínútur og
lausninni er skilað aftur í glasið. Könnun á taimheilsu
var síðan endurtekin 1989, eftir fimm ára forvamarstarf
(mynd 8). í ljós kom að tannlieilsa skólabama hafði
batnað vemlega á þessum áram. Borið saman við hin
Norðurlöndin var tamivemd á íslandi um 10 ámm á
eftir þróuninni þar (25).
Gosdrykkjaþamb nemenda og fullorðinna er hins
vegar orðið mikið áhyggjuefni. Sala á gosdrykkjum og
sælgæti hefur farið stöðugt vaxandi hin síðari ár (26)
eins og sjá má á mynd 9.
Tannskemmdir vegna sykurneyslu í formi
sælgætis og gosdrykkja era vel þekktar. Hins vegar
hefur minna verið talað um áhrif koltvísýringsins í
gosdrykkjum, eu vitað er að hann lækkar sýrastig í
munnltolinu, sem aftur stuðlar að því að glerungurinn
leysist upp. Sykurskert eða “Diet” gos er því ekkert
betra hvað tamiskemmdir varðar að þessu leyti.
52
LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.