Læknaneminn - 01.10.1993, Side 73

Læknaneminn - 01.10.1993, Side 73
skiptingu, því að þetta getur verið umtalsverður kostnaður fyrir hvem einstakling. Það er að vísu ákveðið þak á þessum kostnaði, því að hver einstaklingur fær afsláttárkort eftir að hafa greitt 12 þúsund krónur og lífeyrisþegar eftir þrjú þúsund krónur samtals. Ymsir hafa samt sem áður þurft að greiða umtalsverðar upphæðir og vegna þess var gefin út reglugerð í sumar þar sem var óskað eftir umsóknum frá fólki sem taldi sig hafa orðið fyrir óhóflegum útgjöldum vegna læknis- og lyfjakostnaðar. Það komu einar 500 umsóknir sem nú er verið að fara yfir og á næstu vikum verður tekið á því hvemig þær verða afgreiddar. Þegar fólk er farið að greiða tugi þúsunda á hverju ári, þá er vilji til að skoða þeirra tilvik. Varðandi ferliverkin, þá eru skilin oft töluvert óljós, á milli þeirra sem eru á spítala endurgjaldslaust og hinna sem njóta þjónustu spítala og eru jafnvel næturlangt, en þurfa að greiða hlutdeildarkostnað. Hefiir verið mótuð langtíma stefiia í heilbrigðismálum hér á landi? Ég held að það hafi nú verið verk allra forvera minna að marka heilstæða stefni í heilbrigðismálum og hún liggur fyrir. Ég hef einnig í hyggju að ganga í það verk. Heilbrigðismál em náttúrulega ekki málaflokkur sem stendur kyrr, heldur breytist með breyttu samfélagi. Hann breytist eins og hér hefur gerst á allra síðustu missemm þegar hamar í dalnum í efnahagslífinu, hann breytist þegar atvinnuleysi eykst og með breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar. Heilbrigðis- og tryggingamál hljóta því alltaf að vera í endurmati, þó að ákveðin grundvallaratriði séu ævinlega til staðar. Ég vil sjá það LÆKNANEMJNN 2 1993 46. árg. 67

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.