Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1993, Page 76

Læknaneminn - 01.10.1993, Page 76
telja sig hafa ákveðiim kostnað og vilja fá hann endurgreiddan með bónus, hvað sein tautar og raular og það er erfitt að sannreyna þær tölur. Eg vil einfalda þetta allt saman og að innflytjendur, heildsalar og smásalar fái eðlilegt aðliald við þessa verðlaguingu og þurfi að keppa og hafa fyrir því að reyna ná mður verði, en ekki ganga að því sem vísu að þeir fái alltaf fyrir kostnaði og síðan eitthvað viðbótarálag. Ef þetta frumvarp gengur fram, þá sjáum við fram á snarlækkun lyfjaverðs á næsta ári. Svo við snúum okkur aðeins að lœknum og þeirra menntun. Á þessu ári var samþykkt í Háskólaráði að fækka þeim setn inngöngu fá í læknadeild úr 36 í 30 og meðal nokkurra kennara heyrast raddir sem vilja frekari fækkun. Rökin eru bœði þau að fækkun auki gæði kennslu og að hér útskrifist alltofmargir lœknar ár hvert. Heldur þú að við séum að leggja í of mikinn kostnað og útskrifa ofmarga lækna hér? Þetta heyrir nú ekki undir mig nema með óbeinum hætti. Ég er hinsvegar akademískt simiaður og tel að ekki eigi að stýra Háskólanum með þessum hætti. Ég held að þeir nemendur sem velja þetta nám eða annað eigi að vega þetta og meta sjálfir og við eigum að freista þess að hafa stjómun Háskólans í sem fæstuin tilfellum, helst engmn með einhverju numerus clausus kerfi, eða fjöldatakmörkunm. Það hefur alla tíð verið mín skoðun og er enn. Hinsvegar geta viðkomandi nemendur, imdir þeim fonnerkjum, ekki gengið að því vísu að hér sé sól og sumar þegar þeir koma úr námi. íslenskt samfélag er sökum smæðar sinnar og velmegunar tnjög heppilegt til grunnrannsókna á sviði lœknavísinda. Hér er auðvelt að fylgja fólki eftir, rekja ættir og allt er skráð í bœkur. Finnst þér eftirsóknarvert að nýta þessa kosti og byggja hér upp öflugar rannsóknarstofir? Já, ég held að það sé ekki spuming. I mörgum tilfellum hefur þetta nýst okkur ágætlega og Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur tekið þátt í málum af þessu tagi og horft til þeirrar staðreyndar að hér er mjög auðvelt að halda utan um tiltekna hópa, áhættuhópa á tilteknum sviðum eða einstakar ættir. Ég sé ýmsa möguleika í þessu og landlæknir hefur einmitt verið mikill áhugamaður um að efla þennan þátt og ég vil gjaman leggja því lið. Það er til dœmis tnikill vaxtarbroddur í erfðarannsóknum. Telur þú að við getum fengið alþjóðlegan stuðnittg til að byggja upp gott starfá sviði þeirra? Já, það held ég. Ekki alls fyrir löngu þá var hér einmitt alþjóðleg ráðstefna, þar sem þessir þættir vógu þungt og okkar hluUir í því rannsóknarstarfi varð til vegna þess að við eigum mikið af hæfu fólki og tæki og tól til að afla þessara upplýsinga með ömggum og fljótvirkum hætti. Þannig að ég sé framtíð í því. Að lokutn, hvað gerir fteilbrigðisráðherra til að viðhalda eigin heilbrigði? Ja, ég spila handbolta og körfubolta svona tvisvar til þrisvar í viku, ætli það sé ekki það helsta sem ég geri til að viðhalda heilbrigðinu. Svo halda bömin mín ínér við efnið og kalla á frekari lireyfingu, auka mér heilbrigði til líkama og sálar. Q

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.