Læknaneminn - 01.10.1994, Blaðsíða 8
fyrir hendi er auðvelt að afla upphafskirnanna (prim-
ers) eins og áður sagði. Ekki er nauðsynlegt að hafa
fullkontna vitneskju um basasamsetningu mark-
þráðarins, sem liggur rnilli upphafskirnanna, aðeins
nægilega mikla til að hægt sé að greina hann með
einhverjum hætti eftir fjölföldun. Þó nota megi
aðferðina til margra annarra hluta, hentar hún best til
þess að finna eða sýna fram á tilvist kirnis með
ákveðna basasamsetningu. Um getur verið að ræða
hluta af skemmdum eða heilbrigðum litningi manna
eðadýrafrumna,litningitiltekinnarveirueðabakteríu
eða hluta af erfðaefni bakteríufaga, sem sýkja tiltekna
bakteríu. Með því að veljamarkkirni sem sameiginlegt
er fleiri tegundunr (species) má greina hvort örverur
af tiltekinni ætt (family) eða ætthvísl (genus) eru til
staðar. Einnig er hægt að leita að ákveðnum
undirtegundum (subtype) eða tilteknum stofngerðum
(biotype) eða bakteríum með tiltekna arfgerð (geno-
type) t.d. með tilliti til næmis fyrir sýklalyfjum. Með
því að blanda saman margskonar upphafskirnum
(multiplexing) má einnig leita samtímis að óskildum
eiginleikum eða tegundum. Komin er á markað
raðeining (kit) sem nota má til að greina samtímis í
sama sýni, lekanda og klamýdíusýkingu. Dæmi eru
einnig um að greindar hafi verið sýkingar sem aldrei
hefur tekist að greina með ræktun.
Ætla má að þessi rannsóknaraðferð eða aðrar
hliðstæðar muni með tímanum koma æ meir í stað
hinna hefðbundnu aðferða. Slík þróun mun leiða til
by ltingar í meðferð smitsjúkdóma. I stað þess að hefja
meðferð áður en greining er staðfest, eins og nú
tíðkast, mun verða mögulegt að bíða niðurstaðna og
ákveða meðferð í samræmi við þær þó svo að um
bráðar sýkingar sé að ræða.
PCR-rannsóknir á Islandi
Rannsóknastofa Háskólans í veirufræði eignaðist
hitasveillara árið 1990. Hann hefur verið notaður m.
a. til PCR-rannsókna á papovaveirum, herpesveirum
og HlV-veirum. Nýlega hófust á deildinni rannsóknir
með greiningu á enteroveirum í mænuvökva. Fyrstu
niðurstöður gefa vonir um að aðferðin taki eldri
greiningaraðferðum mikið fram (6,7). Þjónustu-
rannsóknir til greininga á enteroveirum munu
væntanlega hefjast innan tíðar og einnig greiningar á
hepatitis C.
Sýklafræðideild Landspítalans eignaðist hita-
sveiflara árið 1993. Eftir samanburðarrannsókn á
ræktun og notkun PCR við greiningar á sýkingum af
völdum Chlamydia trachomatis (8) var aðferðin tekin
upp sem aðal rannsóknaraðferðin við greiningu slíkra
sýkinga. PCR til greininga á klamýdíusýkingum var
fyrsta keðjufjölföldunaraðferðin til bakteríugreininga
sem sett var á markað sem raðeining (kit). Rannsóknin
er framkvæmd að hlula með sjálfvirkum búnaði og
ætla má að slíkar raðeiningar riðji sér mjög til rúms á
næstu árum. Líklegt er að slíkar rannsóknir verði að
mestu eða öllu leiti framkvæmdar með sjálfvirkum
búnaði vegna þess hve viðkvæmar þær eru og mikil
nákvæmnivinna. Líklega er engin tilviljun að
klamýdíugreiningar urðu l'yrsta viðfangsefni þeirra
sem framleiða raðeiningar fyrir klínískar
rannsóknarstofur. Klamýdíuræktanir eru dýrar og
límafrekar. Svar fæst ekki fyrr en eftir 3 sólarhringa.
Þar að auki er ræktun langt frá að gefa fullnægjandi
niðurstöður. Nærnið er lakast þegar um er að ræða
einkennalausa karlmenn og er ekki nerna um 70% hjá
slíkumeinstaklingum(8). PCR-greiningin, sem byggir
á leit að markþræði á litningi bakteríufaga sem sýkja
bakteríurnar hefur reynst næmari en aðrar
greiningaraðferðir svo sem ræktun (9,10,11,12),
einkum hjá einkennalausum körlum. Einnig veldur
það straumhvörfun að rannsókn á þvagsýnum er
næmari hjá körlum en rannsókn á þvagrásarstrokum.
Líkur eru á að þvagsýni megi einnig nota hjá konum
í stað leghálsstroka. Því hafa opnast áður óþekktir
möguleikar til skimunar. Nú þegar er hafin hér á landi
rannsókn á algengi klamydíusýkinga meðal mennta-
og iðnskólanema. Bráðlega er einnig væntanlegt á
markað PCR-próf sem greinir bæði lekanda og
klamydíusýkingar í sama sýni við sömu rannsókn.
Nú nýlega voru einnig hafnar á sýklafræðideildinni
tilraunir með skyndigreiningu berkla og rnunu þær
væntanlega verða teknar upp sem þjónusturannsóknir
fljótlega. I fyrstu verður ekki um tegundagreiningu að
ræða heldur greinir aðferðin hvort Mycobacteriunr sp
er í sýninu eða ekki.
Ætla má að aðferðir sameindalíffræðinnar eigi eftir
að valda straumhvörfum í greiningu og meðferð
bakteríusýkinga. Ekkert verður fullyrt um hvaða
aðferðir muni verða mest notaðar. Auk PCR
raðeininganna, sem framleiddar eru af Roche diag-
nostics, eru væntanleg á markað önnur mark-
mögnunarkerfi (target amplification systems). Nota
6
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.