Læknaneminn - 01.10.1994, Blaðsíða 53
eða
senda frumrit (ekki vottað ljósrit) íslenska
lækningaleyfisins og vottaða þýðingu þess frá
Heilbrigðisráðuneytinueðalöggiltumskjalaþýðanda.
7) Fá vottað bréflega í Heilbrigðisráðuneyti að
lækningaleyfi hafi ekki verið fellt úr gildi, hvorki um
skemmri eða lengri tíma.
8) Fá vottað bréflega í Heilbrigðisráðuneyti að sú
læknismenntun sem liggur að baki læknaprófi og
lækningaleyfi hér á landi uppfylli þær kröfur sem
settar eru fram í grein 23 í tilskipun 93/16/EEC
eða
fá vottað bréflega í Heilbrigðisráðuneyti að
hlutaðeigandi hafi stundað læknisstörf með viðunandi
árangri og löglegum hætti í að minnsta kosti þrjú ár á
síðustu fimm árum.
Ljósrit af þessum gögnum liggja frammi í möppu
fræðslunefndar FÚL á skrifstofu Læknafélagsins.
GMC ber að afgreiða umsókn um skráningu eins fljótt
og auðið er og ekki síðar en innan þriggja mánaða frá
því að þeim hafa borist ofangreind gögn í hendur skv.
15. grein tilskipunar93/16/EEC. Telji GMC sigfinna
greinilega meinbugi á umsókn er þó hægt að fresta
afgreiðslu um að minnsta kosti sex mánuði meðan
umsóknin er gaumgæfð og hugsanlega farið fram á
frekari fylgiskjöl eða staðfestingu gagna.
Nokkuð er liðið síðan Læknablaðið birti umfjöllun
um framhaldsnám í einstökum sérgreinum á
Bretlandseyjum, en margt af því sem þar er til
umfjöllunar mun þó enn standast tímans tönn (5).
Stutt er á hinn bóginn síðan Reynir Tómas Geirsson
lýsti uppbyggingu framhaldsnáms á Bretlandi og er
mönnum bent á að kynna sér grein hans (6). Þar
kemur meðal annars fram að reikna eigi með að
minnsta kosti þriggja til fimm ára námstíma ætli
menn að takabresku sérfræðiprófin. Helgi Sigurðsson
læknir hefur einnig ritað um framhaldsnám í
læknisfræði á Bret-landi (7). Sé áhugi á frekara námi
utan Evrópska efnahagssvæðisins veita þau meðal
annars aðgang að „fellowship"-prógrömmum í
Bandaríkjunum.
Að endingu skal þess getið að unnið er að því að
setja saman lista yfir íslenska lækna sem eru við
framhaldsnám eða hafa lokið framhaldsnámi á
Bretlandi. Þar mun koma fram hvar þeir hafa lagt
stund á framhaldsnám á Bretlandi. Þessi listi mun
liggja frammi á skrifstofu læknafélagsins ásamt
ýmsum nytsamlegum upplýsingum um búferla-
flutninga milli íslands og Bretlands og heimilisföngum
nokkuiTa breskra stofnana.
HEIMILISFÖNG
General Medical Council (EC-division)
44 Hallam Street
London WIN 6AE U.K.
Símanúmer: 9044-71 580 7642
Símbréf: 9044-71 436 1383
British Medical Association
Tavistock Square
London WC1H9JP U.K.
Símanúmer: 9044-71 387 4499
Þetta greinarkorn byggir óhjákvæmilega að hluta á
því sem áður hefur verið tekið saman um framhalds-
nám á Bretlandi. Fyrri skrifa er getið í heimildaskrá.
Grein þessi birtist áður í Fréttabréfi Lœkna 4/1994
HEIMILDIR
1. Sigurðsson E, Magnússon S. EES-samningurinn:
Áhrif hans á námstækifæri íslenskra lækna og
læknanema. Læknaneminn 1994; 47 (1): 38 -41.
2. Magnússon S. EES-samningurinn genginn í gildi.
Hvernig snertir það íslenska lækna, menntun þeirra og
störf. Læknablaðið/Fréttabréf lækna 1994; 12 (2): 2-4.
3. Tilskipun 93/16/EEC frá Ráðherraráði EB (Council
Directive 93/16/EEC of 5 April 1993 - to facilitate the
free movement of doctors and the mutual recognition
of their diplomas, certificates and other evidence of
formal qualifications). Official Journal of the
European Communities 1993; No. L. 165:1-24.
4. O'Brien E. Prepare a curriculum vitae: How to do it.
BrMed J 1979: 1478-9.
5. Karlsson S, Pétursson H, Teitsson 1, Ólafsdóttir R,
Geirsson RT, Stefánsson S. Framhaldsnám í Bretlandi.
Læknablaðið 1982; 63: 86-91.
6. Geirsson RT. Framhaldsnám í Bretlandi: Góður
kostur. Læknaneminn 1988; 41(2); 42-5.
7. Sigurðsson H. Sérfræðinám lækna í Bretlandi.
Læknablaðið/Fréttabréf lækna 1988; 6: 2-4.
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
47