Læknaneminn - 01.10.1994, Blaðsíða 65
UM UNGAN DRENG
MEÐ HITA OG ÚTBROT
SJÚKRATILFELLI
Pétur Benedikt Júlíusson1
Sævar Halldórsson2
Þórólfur Guðnason3
I. INNGANGUR
Hér mun verða greint frá afdrifum rúmlega fimm
ára gamals drengs er dvaldi á barnadeild Landakots-
spítala á vormánuðum 1993. Hann var innlagður af
heimilislækni vegna hita, stækkaðra eitla á hálsi og
útbrota en hann var grunaður um skarlatssótt. I
eftirfarandi texta er álit Þórólfs skáletrað.
II. SJÚKRASAGA
Drengurinn veiktist þremur dögum fyrir innlögn
með hita og særindum í hálsi. Daginn eftir fékk hann
verk undir hægra eyra og bólgnaði þar upp. Þá var
haldið til heimilislæknis. Reyndist skyndipróf fyrir
streptococcum jákvætt og var hann settur á pensilín
töflur. Hann héltáframaðversnaþráttfyrirpensilínið,
hitinn hækkaði og innlagningardag fékk hann rauða
flekki á bakið sem dreifðust um allan skrokkinn en
urðu svo mest áberandi í kringum holhönd og nára.
Vegna bólgunnar á hálsi byrjaði hann að halla höfði
yfir til vinstri.
Þess ber að geta að drengurinn hafði almennt verið
hraustur. Hann var í leikskóla og á tvær eldri systur.
Streptococca sýkingar hjá börnum höfðu verið
1. Höfundur er deildarlæknir á barnadeild
Landsspítalans.
2. Höfundur er sérfrœðingur íbarnalœkningum.
3. Höfundur er sérfræðingur í barnalœkningum
og smitsjúkdómum barna.
sérdeilis tíðar þessa mánuðina.
III. SKOÐUN VIÐ KOMU
Við komu á barnadeild var drengurinn
veikindalegur, hiti 40.2°C, morbilliform útbrot voru
dreifð um allan líkamann og mynduðu nær samfellda
roðahellu á baki. Miklar eitlastækkanir voru á hálsi
en hægra megin, 5 cm undir eyranu, var u.þ.b. 7.5 cm
bólguhella, aum viðkomu og heit en án roða. Honum
þótti sárt að opna munn, hvítleit skán var á tungu og
mikill roði í koki.
Lungna- og hjartahlustun vareðlileg. Dreifð eymsli
voru við þreifingu kviðar.
IV. NIÐURSTÖÐUR FYRSTU
RANNSÓKNA
Hemóglóbín I27,sökk70,hvítblóðkorn 16.3 (stafir
48%, segment 45%, 1% metamyelocytar). Elektró-
lýtar voru eðlilegir,kreatínín46 ogCRP59. Monospot
(blóðpróf til að greina Epstein Barr veirusýkingu) var
neikvætt. Heildar bílirúbín var 28 mmól/1
(viðmiðunargildi 4-17), ALAT 210 U/L (5-45), gGT
135 U/L (5-32).
Skyndipróf fyrir streptococcum í hálsi var jákvætt
og ræktun úr hálsinum sýndi (+) fyrir streptococcum
gr. A.
Mismunagreiningarhjáþessum 5 áragamla dreng
eru margvíslegar:
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
59