Læknaneminn - 01.10.1994, Blaðsíða 79
Línurit 1: Meðal breyting Oswestry stiga: a =
allra sjúklinga, b = allra sjúklinga sem var jylgt
eftir í tvö ár.
skjótum bata og þar með stuttum bótatíma og lítilli
röskun fyrir atvinnulífið. Legudagar á sjúkrahúsum
eru fáir og því er meðferðin ódýr.
Ef þeir 72.000 sjúklingar sent nutu meðhöndlunar
á göngudeild í könnun BMRC14 hefðu verið
meðhöndlaðir af kírópraktorum hefði breska ríkið
sparað rúm 70 pund á hvern sjúkling. Skentmri tími
frá vinnu hefði skiiað iðnaðinum rúmum 200 pundum
á mann og breska ríkið hefði sparað sjúkrabætur upp
á tæp 55 pund. Samtals hei'ði þetta verið um 325 pund
eða um 35.000kr. á ntann.
í könnun Erballs19 var meðai meðhöndlunar-
kostnaður á sjúkling $571 hjá kírópraktorunum en
$738 hjá læknunum. Kostnaður vegna bóta var $392
hjá sjúklingum kírópraktoranna en $1570 hjá
sjúklingum læknanna. Heildarkostnaður vegna
þessara hópa var $963.47 í hópi kírópraktoranna en
$2308.10 í hópi læknanna.
Könnun Jarvis og félaga 20 sýndi meðhöndlunar-
kostnað hjá kírópraktorum upp á $527 en $684 hjá
læknum. Þegar litið er á tölur yfir bótagreiðslur
Línurit 2: Meðal breyting Oswestry stiga: a =
allra sjúklinga sem byrjuðu með < 40% stig, b =
allra sjúklinga sem byrjuðu með >40% stig.
kemur hins vegar í ljós að sjúklingar kírópraktora
fengu greidda $68.38 að meðaltaii en sjúkiingarlækna
$668.39, um tífalt hærri upphæð.
P. Manga5 telur upp allnokkrar aðrar rannsóknir
sem benda í söntu átt og tekur fram að ekki hafi
fundist sannfærandi rannsókn sem benti til hins
gagnstæða.
MIKILVÆGI KÍRÓPRAKTÍKUR Á ÍSLANDI
Stoðkerfisvandamái valda einstaklingum kvölum,
svefnleysi, tekjutapi, glötuðum tækifærum, o.s.frv.,
o.s.frv. Atvinnulífið verður einnig fyrir miklum
skakkaföllum vegna framleiðslutaps, kostnaðar við
að þjálfa nýtt starfsfólk eða vegna greiðslna til fólks
sem er frá vinnu. Auk þessa eru oft mikilvægustu
starfskraftarnir mest frá vegna slitsins sem leikur
menn verst á besta aldri, 45 til 55 ára. Samfélagið allt
geldur vegna fyrrnefndra atriða en auk þeirra legst á
það sjúkrakostnaður og töpuð opinber gjöld
einstaklinga og fyrirtækja vegna minni tekna þeirra.
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
71