Læknaneminn - 01.10.1994, Blaðsíða 38
í notkun nýr og stærri klefi í nýinnréttuðu húsnæði á
Borgarspítala. Frá júní 1993 hefur einn íslenskur
læknir starfað við klefann og fjöldi sjúklinga sem
meðferðar nutu fyrsta starfsárið var um sextíu.
EÐLISFRÆÐI VERKUNAR
Við aukinn loftþrýsting eykst styrkur uppleysts
súrefnis í plasma í réttu hlutfalli við hlutþrýsting þess
íinnöndunarlofti og loftþrýsting í umhverfi. Meðferð
er oftast beitt við 2-3 loftþyngdir sem sambærilegt er
við þrýsting á 10-20 metra dýpi. Við hverja 10 m
aukningu dýpis eykst þrýstingur um 1 loftþyngd.
Hemóglóbín fullmettast við 100 mm Hg þrýsting
súrefnis, en við háþrýstiaðstæður verður ofurmettun
þegar súrefnið fer úr loftfasa og leysist upp í plasma.
Með þessu móti verður súrefnisþrýstingur í plasma
allt að 1000-1800 mm Hg við 2-3 atm. Súrefnis-
flutningsgeta plasma við þrjár loftþyngdir (3 atm)
þegar andað er hreinu súrefni er orðin svo mikil að
unnt er að viðhalda lífi tímabundið án blóðrauða eins
og sýnt hefur verið fram á með dýratilraunum.
Hinn aukni súrefnisþrýstingur veldur æðasamdrætti
í eðlilegum slagæðum og á svæðum þar sem ekki er
súrefnisskortur. Gelur blóðílæði perifert minnkað
um allt að 20% meðan á meðferð stendur. Þessi
skerðing kemur þó ekki að sök við meðferðina og
getur komið að góðum notum þar sem hún dregur úr
bjúgmyndun almennt en óeðlileg vökvasöfnun í vef
umhverfis sár hemur gróanda.
Háþrýstimeðferð minnkar rúmmál lofttegunda í
líkamanum í samræmi við lögmál Boyle's sem segir
að rúmmál lofts standi í öfugu hlutfalli við þrýsting
þess við stöðugt hitastig. Við loftrek (air embolism)
og í kafaraveiki veldur frítt loft vefjaskaða og með því
að auka þrýsting er unnt að minnka loftbólurnar sem
myndast hafa eða útrýma þeim alveg með aukinni
leysni lofttegundanna í vökvafasa.
Loftháðar bakteríur þrífast vel við umframmagn
súrefnisog getalifaðafsúrefnisþrýstingalltaðþremur
loftþyngdum en verði hlutþrýstingur súrefnis í
umhverfi þeirra meiri en 1,3 atm kann það að hefta
getu þeirra til að fjölga sér. Við súrefnismeðferð er
unnt að ná þessari þéttni súrefnis í sárbeð sé blóðflæði
til svæðisins nægilegt. Með þessu móti er unnt að
halda altur af fjölgun sýkla sem tekið hafa sér bólfestu
í sári.
Háþrýstimeðferð með súrefni hefur reynst gagnleg
við meðhöndlun á ýmsum sýkingum af völdum
loftfælinna baktería. Ofmellun með súrefni hemur
fjölgun og starfsemi ýmissa sporamyndandi baktería,
t.d. Clostridium perfringens, og einnig eru not af
meðferðinni í meðhöndlun slæmra sýkinga með
vefjadrepi af völdum blandaðrar flóru, t.d. Bacter-
oides og Staph. aur. Hinn hái súrefnisþrýstingur
hindrar my ndun eiturefna sem sumar þessara baktería
gefa frá sér.
Meðhöndlun alvarlegra loftfælinna sýkinga með
súrefni er gott dæmi um það hvernig tvinna má
háþrýstimeðferð saman við aðra meðferð og nota sem
stuðning. Grundvöllur meðferðar er að gefa sýklalyf
og fjarlægja dauðan vef, en sé súrefni gefið samtímis
getur reynst unnt að komast fyrir sýkingu mun fyrr en
ella.
Svo að sár megi gróa er ákveðinn lágmarks-
þrýstingur súrefnis í vefnum nauðsyn. Þar sem
blóðflæði er skert, t.d. í sumum sárum sykursjúkra, er
með háþrýstimeðferð hægt að framkalla eðlilegt
súrefnismagn tímabundið og skapa þar með forsendur
fyrir gróanda. Hin tímabundna súrefnisaukning stuðlar
að nýmyndun æða, beinmyndun, eðlilegri starfsemi
bandvefsfrumna, bandvefsmyndun, og eykur
drápsgetu hvítra blóðkorna.
ÁBENDINGAR FYRIR MEÐFERÐ
I töflu 1 má sjá lista yfir þær ábendingar fyrir
háþrýstimeðferð sem gefinn er út og reglulega
endurskoðaður af samtökum bandarískra háþrýsti-
lækna, Undersea and Hyperbaric Medical Society.
Listi þessi hefur breyst nokkuð í áranna rás og áður
gildar ábendingar verið teknar af listanum ef
vísindalegan grunn hefur þótt skorta, en öðrum bætt
við eftir að rök hafa verið færð fyrir gildi þeirra.
Við meðhöndlun á kolabrandi (gasgangren) er
súrefnið notað til að hindra myndun aflatoxín sem er
öflugt vefjaskemmandi efni framleitt af Clostridium
perfringens. Háþrýstimeðferð er eitt þriggja
meðferðarforma sem beitt er gegn þessari lífshættulegu
sýkingu. Nauðsynlegt er að sjúklingurinn fái viðeig-
andi sýklaly fj ameðferð og dauður eða dauðvona vefur
sé hreinsaður burtu, en súrefnisgjöf undir háþrýstingi
er fljótlegasta leiðin til að hindra myndun aflatoxíns
í sýktum vef. Þar sem mestur skaði verður af völdum
eitursins telja margir að ráðlegast sé að hefja
súrefnismeðferð svo fljótt sem unnt er og láta hana
36
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.