Læknaneminn - 01.10.1994, Blaðsíða 51
FRAMHALDSNAM A
BRETLANDI
VÆNLEGRI KOSTUR NÚ EN NOKKRU SINNI FYRR
Engilbert Sigurðsson
HVERSVEGNA?
Hinn l.janúar 1994tóksamningunnnhiðevrópska
efnahagssvæði (EES) gildi. Svæðið samanstendur af
aðildarríkjum Evrópubandalagsins ásamt fimm af sjö
EFTA ríkjum (Sviss og Liechtenstein standa utan
þess, til að byrja með að minnstakosti). Samningurinn
hefur veruleg áhrif á möguleika íslendinga til
grunnmenntunar og framhaldsmenntunar í læknis-
fræði. Þessum breytingum voru gerð skil í síðasta
tölublaði Læknanemans og í síðasta Fréttabréfi lækna
(1,2). Mestu máli skiptir að EB-tilskipun (Council
Directive) 93/16/EEC um réttindi lækna gildir á
svæðinu frá gildistöku samningsins (3). Tilskipunin
á aðeins við um ríkisborgara aðildarlanda samningsins
og þau prófskírteini sem gefin eru út af stofnunum
sem taldar eru upp í samningnum. Sú grunnmenntun
sem gengið er út frá að læknir á svæðinu hafi hlotið á
að hafa varað í sex ár eða 5.500 kennslustundir við
háskóla eða undir eftirliti háskóla. Nám í læknisfræði
við Háskóla íslands uppfyllir þessi skilyrði.
í tilskipun 93/16 er tekið fram hvaða prófskírteini,
löggildingarskírteini (svo sem lækningaleyfi eða
sérfræðileyfi) eða önnur vottuð staðfesting á kunnáttu
lækna verði sameiginlega viðurkennd á svæðinu. 1
EES-samningnum stendur eftirfarandi um forsendur
lækningaleyfis: ,,Próf í lœknisfrœði frá lœknadeild
Háskóla íslands" og getið er kröfu um 12 mánaða
kandídatsár. Sérhvert aðildarland skal viðurkenna
próf lækna frá öðrum aðildarríkjum og veita þeim
Höfundur er í framhaldsnámi í geðlœkningum í
Lundúnum
réttindi til læknisstarfa, þar með talið lækningaleyfi,
innan þriggja mánaða frá því að umsókn með öllum
nauðsynlegumfylgiskjölumhefurboristhlutaðeigandi
yfirvöldum (grein 15 í tilskipuninni) nema augljósir
meinbugir séu á umsókninni.
Ekki er ráðlegt að reyna að fara í klínískt
framhaldsnám á Bretlandi fyrr en að fengnu
lækningaleyfi, enda má það heita illgerlegt í
framkvæmd. Fjöldi slíkra námsstaða (Junior House
Officer) er til dæmis miðaður við fjölda útskrifaðra
læknanema á Bretlandi og grundvöllur skráningar á
Bretlandi er að kandídatsári sé lokið og lækningaley fi
fengið. Til að fá að þreyta PLAB-prófið þurfa menn
einnig að hafa lokið 12 mánaða kandídatsári.
HVERJU BREYTIR ÞETTA?
Á síðustu árum hafa Islendingar aðeins getað
fengið skráningu sem læknar á Bretlandi að
undangengnu viðamiklu prófi (Professional and Lin-
guistic Assessment Board-PLAB), sem prófaði ekki
aðeins læknisfræðilega þekkingu, heldur einnig
enskukunnáttu. Próf þetta hefur verið bæði þungt og
kostnaðarsamt og hefur aðeins verið haldið á B retlandi.
Hægt hefur verið að fá undanþágu frá PLAB-prófinu
(exemplion from PLAB) að uppfylltum ýmsum
skilyrðum. íslendingar hafa þó aðeins getað fengið
takmarkaða skráningu (limited registration) til
framhaldsnáms semtakmarkardvöl á Bretlandseyjum
við fimm ár og krefst árlegrar endurnýjunar. Með
samþykkt EES-samningsins þurfa íslendingar ekki
lengur að hugsa um PLAB eða undanþágur heldur
geta sótt rakleiðis um almenna skráningu (full
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
45