Læknaneminn - 01.10.1994, Side 34

Læknaneminn - 01.10.1994, Side 34
(sjá texta). frá bólgusvæðinu. í vefjasýnunum sáust hin sígildu meinafræðilegu skilmerki, bjúgkenndur bandvefur með íferð eitilfrumna, plasma frumna og histiocyta í æðar og í kringum þær, auk granuloma með fjölkyrndum risafrumum án ystingsdreps (16,27). Melkersson-Rosenthal heilkenni hefur einnig verið tengt ýmsum öðrum sjúkdómum og sjúkdóms- einkennum. Þar á meðal eru mígrenlíkur höfuðverk- ur, V. taugar taugaverkir, otosclerosis, cranio- pharyngioma, meðfæddur risaristill, sárasótt (8), herpeslík útbrot, beinúrkölkun, illkynja lyrnpho- granulomatosis, hárfrumu hvítblæði (4), fyrir- tíðarspenna, sero-negatívur oligoarthritis (5) og geðsjúkdómar (10,16,26,28). Orsök Orsök MRH er óþekkt. Kenningar um orsök heilkennisins eru margskonar. Yfirleitt er talið að orsökin sé sýking, ofnæmi eða að um arfgengan sjúkdóm sé að ræða. Engin sannanleg tengsl hafa fundist á milli MRH og berkla, toxoplasmosis, sárasóttar, herpesveira eða annarra sýkingarvalda. Nokkrir hafa stungið upp á tengslum við sarcoidosis eða að sjúkdómurinn sé afbrigðileg mynd sarcoidosis. Ekkert hefurenn rennt sloðum undir þá hugmynd (26). Vegna þess hve gangur sjúkdómsins hefur oft á tíðum líkst angioödemi hafa margir talið einkennin vera ofnæmi eða afbrigðilegt ónæmissvar af einhverjum toga. Nokkrir hafa stungið upp á sjálfsofnæmi en oft finnst í sjúkdómnum aukning á immunoglobulini, væg hvítfrumufjölgun, hækkað sökk og atypískir kyrningar (21,22). Fyrir tæpum 10 árum stakk Patton upp á því að mataróþol gæti verið mikilvægur orsakaþáttur (18). Þetta hefur ekki verið staðfest en síðan þá hefur nokkrum tilfellum verið lýst þar sem aukaefni í fæðu lágu undir grun. I einu tilfelli minnkuðu einkennin talsvert eftir að aukaefni eins og monosodium glutamate (E621), sunset yellow (E 110) og carmoisine (E 122) voru útilokuð úr fæðunni (25). 1989 var lýst sjúkratilfelli þar sem sjúklingurinn læknaðist þegar aukaefnin natríum benzoate (E 211) og tartrazine (E 102) voru tekin úr fæðunni (17). Einnig kom upp grunur um fæðu- eða aukaefnaóþol hjá sjúklingnum sem hér er lýst en ekki tókst að sýna fram á það þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir. Sú staðreynd að BelEs lömun, lingua plicata og angioödema hafa tilhneigingu lil að fylgja ákveðnum fjölskyldum leiddi til þess að menn fóru að athuga hvortMRH gæti veriðbundiðíerfðir. Igegnumtíðina hefur nokkrum tilfellum verið lýst sem renna einhverjum stoðum undir þessa kenningu (26). Ein rannsókn sýndi að 55% MRH tillella höfðu sögu er benti til arfgengis en önnur rannsókn fann aðeins 6% tilfella með slfka sögu (1). I nýlegri rannsókn á arfgengni MRH gat rannsóknarhópurinn ekki sýnl fram áaukna tíðni sjúkdómsins í ættingjum sjúklinga með MRH. Þau telja hins vegar að orsök sjúkdómsins sé margþætt og að einn orsakaþáttur geti verið einhvers konar arfgengur veikleiki (12). Mismunagreiningar Mismunagreiningar eru margar fyrir bólgna vör eða aukna fyrirferð á vör. Vegna þess hve MRH er 32 LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.