Læknaneminn - 01.10.1994, Page 10

Læknaneminn - 01.10.1994, Page 10
HEILSUGÆSLA I BORG Á VÍGLÍNU EKKI BARA LÆKNISFRÆÐI JÓHANNA LÁRUSDÓTTIR Við söfnumst saman við brynvarða bílinn hennar Patriciu eldsnemma ískaldan desembermorgun. Við erum á förum til austurhluta Mostar í fyrrum Júgóslavíu. Frá því að bardagar hófust á milli múhameðstrúarmanna og Króata hefur víglína skipt borginni í tvennt. Austurhlutinn er í höndum múhameðstrúarmanna en vesturhlutinn í höndum Króata. Flarðir bardagar geisa á milli þessara tveggja borgarhluta. Fyrir stríð var einungis ein aðal heilsugæslustöð í Austur-Mostar og nokkrar minni stöðvar í nærliggjandi þorpum. Við hittum spænsku friðargæslusveitina (SPANBAT) við síðasta vegatálma Króata. Þeir sjá um að vernda hjálparstarfsmenn og skipuleggja daglegar ferðir inn á stríðssvæðin. í fararbroddi eru skriðdrekar, síðan lest af minni brynvörðum bílum og trukkum, skriðdrekarrekalestina. Leiðin sem erfarin til austur-Mostar er vandfundin og liggur um svæði sem eru þakin jarðsprengjum og sífelld hætta er á skotárásum. Fljálparstarfsmenn eru í skotheldum vestum og með hjálm. Þeir eru auðvelt skotmark fyrir leyniskyttur Króata, en sá hluti leiðarinnar sem liggur yfir fyrrum flugbraut er sérstaklega hættulegur. í útjarði Mostar standa nokkur skítug börn á vegabrúninni og veifa í von um að bílstjórarnir hendi einhverju ætilegu til þeirra. Mörg börn hafa orðið fyrir trukkum og látið lífið við þessa iðju í Bosníu. Börnum í Mostar stafar auk þess mikil hætta af leyniskyttum þegar þau eru utanhúss. Höfundur er starfsmaður Alþjóða Heilbrigðis- málastofnunarinnar í suðurhluta Bosníu Hercegovinu frá desember 1992. Lík af eldra manni liggur á götunni nálægt einum af varnarveggjunum sem hafa verið byggðir fyrir hliðargöturnar. Hann er svo nálægt varnarveggnum að okkur er óskiljanlegt hvernig leyniskytturnar hafa komið auga á hann. Seinna er okkur sagt að leyniskytturnar hafi breytt um staðsetningu og nú sé ómögulegt að vara sig á þeim. Við skiptum liði. Við í heilbrigðishópnum byrjum á því að fara á heilsugæslustöðina. Þar fer öll starfsemin fram í kjallaranum. Gluggarnir eru þaktir sandpokum og engin birta kemst inn. I Mostar er ekkert rafmagn, engin kynding og ekkert rennandi vatn. í myrkrinu og kuldanum liggjanokkrirsjúklingar undir teppum. Þau eru að spara kertin. Fyrir utan er stöðug skothríð og einstaka stærri sprengjur hrista bygginguna. Það er fyrirburi í hitakassanum, sem gengur fyrir rafhlöðum. Okkur til mikilla vonbrigða virkar hitakassinn ekki. Bamalæknirinn telur hann vera hannaðan fyrir styttri ílutninga á fyrirburum þar sem rafhlaðan endist bara í fjórar klukkustundir. Hann hefur sennilega rétt fyrir sér. Við lofum að reyna að koma með venjulegan rafgeimi úr bíl og vonum að það nægi til að koma hitakassanum í gang. Mikael kallar í talstöðina. Hann verður fyrir utan bygginguna eftir tvær mínútur. Við kveðjum í snatri og undirbúum okkur undir að hlaupa þessa tvo metra frá byggingunni út í bíl. Spænskur friðargæsluliði var nýlega skotinn til bana fyrir utan stöðina og þess vegna er, eins og á svo mörgum öðrum stöðum í Mostar, öruggara að hlaupa. Við förum því næst á skrifstofu hernaðar- LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.