Læknaneminn - 01.10.1994, Page 49
mg
mg
MONIT-L
(isósorbið mónónítrat)
-forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag.
Mónít-L (ísósorbíö mónónítrat)
Framleiöandi: OMEGA FARMA hf.. Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur.
Foröahylki; C 01 D A 14. Hvert foröahylki inniheldur: Isosorbidi mononitras
INN 30 mg eða 60 mg. Eiginleikar: Ísósorbíð mónónítrat er virkt umbrotsefni
ísósorbíð dínítrats. Það slakar á sléttum vöðvum æða, aðallega í bláæðum, minnkar
þannig flæði til hjartans og þar með hjartastærð og auðveldar samdrátt hjartans. Lyfið
hefur einnig bein útvíkkandi áhrif á kransæðarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%.
Blóðþéttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst. er þéttni ekki svo mikil að þol
myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niðurbrotsefni útskiljast í
þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir
verk. Frábendingar: Lágur blóðþrýstingur, sérstaklega eftir hjartadrep. Mikið
blóðleysi. Aukinn þrýstingur í miðtaugakerfi. Slagæðasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir
nítrötum. Meóganga og brjóstagjöf: Öryggi lyfsins á meðgöngu og við brjóstagjöf
hefur ekki verið staðfest. Aukaverkanir: Höfuðverkur. Æðasláttur og roði. Hár
blóðþrýstingur. Svimi. Yfirlið. Hraður hjartsláttur. Uppköst. Milliverkanir: Áfengi
getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúö: Við brátt hjartadrep á aðeins
að nota lyfið undir mjög nákvæmu eftirliti. Skammtastæröir handa fullorönum:
í upphafi meðferðar er ráðlagöur skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60
mg á dag, gefið að morgni. Ef þörf krefur má auka skammt í 120 mg á dag sem taka
skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á myndun þols viö
langvarandi notkun nítrata er óráölegt aö nota nítröt samfleytt meira
en 12 klst. í hverjum sólarhring. Lyfiö er ekki ætlaó börnum.
Pakkningar:
Foröahylki 30 mg: 30 stk.; 100 stk.
Foröahylki 60 mg: 30 stk.; 100 stk.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990