Læknaneminn - 01.10.1994, Qupperneq 50
(flúoxetín)
-árangursríkt íslenskt geðlyf
Seról (flúoxetín)
Framleiöandi: OMEGA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Hylki; N 06 A B 03. Hvert
hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríö, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar: Flúoxetín
er geödeyfðarlyf, sem er talið verka þannig, að það blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í
heila. Lyfið hefur lítil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boðefni í heila. Flúoxetín minnkar
matarlyst. Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetíns í blóði er
2-3 dagar. Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetín og helmingunartími
þess er 7-9 dagar. Próteinbinding í plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í þvagi,
að mestu sem umbrotsefni. Ábendingar: Innlæg geödeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandi
þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber aö
gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruöum. Varúö: Viö
þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í byrjun meöferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir
mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki,
niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kvíði, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með
útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum og ekki fyrr en 2
vikum eftir að töku slíkra lyfja var hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Skammtastæröir
handa fullorönum: Venjulegur upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er aö taka aö morgni.
Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn
smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Lyfiö er ekki ætlað börnum.
Pakkningar: Hylki 20 mg: 30 stk.; 100 stk.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframlelðslu, stofnaö 1990