Læknaneminn - 01.10.1994, Page 101
Ályktun: Á rannsóknatímabilinu fengu um 1/3 sjúklinga
sýklalyf, og í —1/3 tilvika voru þau gefin í varnarskyni. I
meðferðarskyni voru cephalosporin langmest notuð en í
varnarskyni cloxacillin. Um 51 % ávísana voru annaðhvort rangar
eða ábótavant, hliðstætt svipuðum rannsóknum erlendis.
TÍÐNI ILLKYNJA SJÚKDÓMA í
METIIOTREXATE MEÐHÖNDLUÐUM
RHEUMATOID ARTHRITIS SJÚKUNGUM
Arnar Þór Guðmundsson'.
Árni Jón Geirssoir, Kristján Steinsson2.
'LHÍ, 2Gigtardeild Lsp, göngudeild Lsp, Lœknasetrið.
Inngangur: Frumudrepandi (cytotoxic) lyf eru nú notuð f æ
ríkari mæli til þess að meðhöndla sjúkdóma sem ekki eru illkynja,
sérstaklega autoimmune sjúkdóma eins og rheumatoid arthritis
(iktsýki). Sannað er að þessi lyfhafa góð áhrifá sjúkdómsganginn
í R.A., þó ekki sé vitað nákvæmlega hvernig þau verka. Eitt
þessara cytotoxísku lyfja er Methotrexate (MTX) og hefur notkun
á því farið vaxandi um allan heim síðustu árin, ekki síst á Islandi.
Ymsar rannsóknir benda til að sum þessara lyfja geti tengst
aukinni tíðni illkynja sjúkdóma, einkum lymphoma og hvítblæði.
Mjög litlar upplýsingar liggja fyrir um þessi atriði hvað varðar
MTX, en tilgangur þessarar rannsóknar er einmitt að kanna hvort
tíðni illkynja sjúkdóma sé aukin í R.A.-sjúklingum sem hlotið
hafa MTX-meðferð. Einnig er ætlunin að kanna tíðni allra annarra
aukaverkana sem fylgt geta töku MTX. Rannsóknin er ekki
komin á það stig að unnt sé að birta tölfræðilegar niðurstöður, en
henni verður haldið áfram f sumar.
Efniviður og aðferðir: Þetta er afturvirk (retrospective) cohort
rannsókn sem nær aftur til ársins 1982. Sjúklingar voru fundnir
með því að fá tölvuútskrift allra með greininguna R.A úr
innlagnarskrám Lsp., allt til ársins 1982. Einnig eru hafðir með
sjúklingar meðhöndlaðir á göngudeild Lsp. og á Læknasetrinu. Úr
gögnumþessarasjúklinga ersíðan safnað upplýsingum um aldur,
kyn, upphafsjúkdómseinkennaR.A.,greiningaraldurR.A.,klínísk
einkenni og helstu rannsóknar-niðurstöður (blóðhagur, lifrarpróf,
gigtarpróf, vefjaflokkun o. fl.). Itarlegum upplýsingum um
lyfjameðferð við R.A. er safnað saman, þ.á.m. tegundir lyfja,
stærð skammta og tímalengd meðferðar. Einnig eru aukaverkanir
skráðar. Þá er einnig tekin saman reykingarsaga og ættarsaga um
gigtarsjúkdóma og illkynja sjúkdóma. Fundið er út hverjir hafa
verið á MTX og sérstök skrágerð yfir þá, ef þeir hafa verið á lyfinu
í 4 vikur eða lengur, en eftir þann tíma teljum við þá útsetta
(exposed) fyrir hugsanlegum illkynja aukaverkunum MTX. Listi
yfir alla R.A. sjúklingana var borinn saman við Krabbameinsskrá
Islands til þess að finna þá sjúklinga sem fengið höfðu krabbamein.
Öllum sjúklingum með fyrri sögu um illkynja sjúkdóma allt að
árinu 1982 er sleppt. Hættan á illkynja sjúkdómum verður metin
með því að reikna út nýgengishlutfall (incidence rate) og SMR
(standard morbidity rate) fyrir illkynja sjúkdóma og bera þessar
tölur saman við samsvarandi tölur í almenna þýðinu og við R.A.
sjúklinga sem ekki hafa tekið MTX.
Niðurstöður: Heildarfjöldi sjúklinga í rannsókninni er um
770 og er söfnun upplýsinga úr gögnum þeirra ekki enn lokið.
Samanburður við krabbameinsskrána leiddi í ljós 55 einstaklinga
með 59 krabbamein, en þessar upplýsingar er ekki vænlegt að
túlka nánar fyrr en allar upplýsingar um sjúklingana liggja fyrir.
Umræður: Mjög laar hliðstæðar rannsóknir hafa verið gerðar
erlendis og ber niðurstöðum þeirra ekki saman. Á Islandi eru
aðstæður góðar fyrir rannsókn af þessu tagi, því krabba-
meinsskráning er mjög nákvæm og einnig hefur MTX verið notað
lengurhérlendis viðR.Aen í flestum öðrum löndum.eðafráárinu
1982. Forkönnun bendir til að krabbamein geti verið tíðari í
þessum hópi sjúklinga á Islandi en í almennu þýði. Til stendur að
safna upplýsingum á ný eftir nokkur ár til þess að athuga
langtímaáhrif MTX-meðferðar.
AFDRIF SJÚKLINGA SEM HLJÓTA MJAÐMARBROT
Bent Áee Rolandsen'.
Brynjólfur Mogensen2.
1LHÍ, 2Bœklunarlækningadeild Bsp.
Inngangur: Sjúklingar sem hljóta mjaðmarbrot eru lang-
flestir aldraðir og margir orðnir mjög lasburða. Fyrir þessa
sjúklinga getur mjaðmarbrotið orðið afdrifarfkt. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna afdrif sjúklinga sem hlutu
mjaðmabrot árið 1990 og voru meðhöndlaðir á Bæklunar-
lækningadeild Borgarspítalans.
Efniviður: Skoðaðar voru sjúkraskýrslur allra sjúklinga sem
hlutu mjaðmarbrot árið 1990 og voru meðhöndlaðir á
Bæklunarlækningadeild Borgarspítalans. Kannaður var
meðalaldur, brotgerð og aðgerðartegund, hvaðan sjúklingarnir
komu og hve margir voru lifandi í mars 1994.
Niðurstöður: Árið 1990komu65sjúklingarmeðmjaðmarbrot
til meðferðar á Bæklunarlækningadeild Borgarspítalans.
Meðalaldur sjúklinganna var74.8 ár (32-100). Brot á Iærleggshálsi
hlutu31 (25konur,6karlar), lærhnútubrot 31 (20konur, 11 karlar)
og brot neðan lærhnútu 3 (2 konur, 1 karl). Lærleggshálsbrotin
voru negld með tveimur nöglum að ætti Hansons í 29 tilvikum en
tvisvar sinnum var settur í hálfliður. Lær-hnútubrot og brot neðan
lærhnútu voru öll negld með renniskrúfu og spöng utan eitt sem
varfestmeðAO-spöng. Geraþurftinýjaaðgerðhjá lOsjúklingum
meðlærleggshálsbrot. Hjá5 þurfti aðsetjai hálfliðvegnaógróanda
eða beindreps í lærleggskolli og hjá 5 voru naglar teknir. Hjá
tveimur sjúklingum sem hlutu lærhnútubrot var renniskrúfa og
spöng tekin. 39 sjúklingur kom að heiman en 26 af ýmis konar
öldrunarstofnunum. Sjúklingar sem komu að heiman voru að
meðaltali 69,1 árs (32-90) en sjúklingar sem komu að stofnunum
voru að meðaltali 83,4 ára (41-100). Af þeim 39 sjúklingum sem
komu að heiman fóru 20 beint heim aftur, 7 fóru á
endurhæfingadeild,4fóru áheimasjúkrahús, 3 lögðust inn áaðrar
bráðadeildir eftir neglingu á mjöðminni og 5 útskrifidust á
öldrunarstofnun. Af þeim 26 sjúklingum sem komu að stofnun
fóru 2 á endurhæfingadeild en 24 útskrifaðust aftur á sömu stofnun
og þeir komu frá. Meðallegutími sjúklinga á Bæklunar-
lækningadeild var 10.5 (1-43) dagur en á endurhæfingadeild 53
(17-126) dagar. I mars 1994 voru 25 af 65 sjúklingum látnir, þar
aflétust 16eða25%áfyrstaári. Afþeim20sjúklingumsemkomu
að heiman og fóru beint heim aftur voru aðeins einn látinn við
eftirlit i mars 1994. Engir sjúklingar sem þurfti að gera á nýja
aðgerð á voru látnir við eftirlit í inars 1994.
Ályktun: Sjúklingar sem hljóta mjaðmarbrot eru flestir orðnir
aldraðir og oft lasburða. Þeir sem koma að heiman eru yngri og
betur á sig komnir en þeir sem koma að stofnunum og farnast mun
betur. Mjaðmabrotið er oft dropinn sem fyllir mælinn.
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
91