Læknaneminn - 01.04.1996, Blaðsíða 5
Efnisyfirlit:
Leiðari 3
Vökvameðferð í útbláæðar .............................. 6
Ónæmisbæling í krabbameini ........................... 14
Stofnfrumur úr naflastrengsblóði. Til hvers? ......... 16
Æðakölkun - er gátan leyst? .......................... 24
Utanbastsígerð (epidural abscess) af völdum
Streptococcus milleri ................................ 33
Sjúkratilfelli. Átta ára drengur,
haltur með verki í hægri fæti ........................ 38
Lyfjameðferð gegn sýkingu af völdum alnæmisveiru
- ný viðhorf ......................................... 41
Þættir úr meingerð iktsýki ........................... 46
Læknisfræðileg myndgreining í nútíð og framtíð ....... 53
Undrasameindin NO .................................... 56
Breytingaskeið og hormónameðferð, seinni grein...... 58
Á ferð um Afríku...................................... 65
Eftirvirkni sýklalyfja................................ 74
péfimmtíuogþrír ...................................... 79
Áhrif reykinga á frjósemi, meðgöngu og fóstur ........ 81
Útlimaáverkar......................................... 90
1
Læknaneminn
Vatnsmýrarvegi 16,1. hæð
Símbréfsnr. og símsvari: 5510760
Ritstjórn:
Ritstjórar og ábyrgðamemi:
Gunnar Bjarni Ragnarsson
Ingvar Hákon Ólafsson
Meðritstjömendur:
Arnar Geirsson
Óttar Már Bergmann, fjármálastjóri
Jóhann Elí Guðjónsson
Kristján Orri Helgason
Sigurður Sverrir Stephensen
Tryggvi Helgason
Málfarslegur ráðunautur
Ármannjakobsson
Forsíðumynd
Myndin er af ungri stúlku og er tekin á
sérstökum hátíðarhöldum kvenna í
Burkína Fasó sem áður hét Efri-Volta
og er í Vestur-Afríku.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan GRAFÍK hf.
Um blaðið
Út er komið seinna tölublað þessarar ritstjórnar. Útlitið er talsvert breytt og vonurn við að það mælist vel fyrir. Stefna okkar frá
upphafi var að gera gott blað betra. Við reyndum að halda áfram að auka faglega rýni á texta. Hinar lengri faggreinar voru í
flestum tilvikum lesnar yfir af tveimur fagaðilum, óháðum höfundi, sem ritstjórn valdi. Greinahöfundar voru ánægðir með þessa
meðferð og ætlum við að reynslan muni nýtast næstu ritstjórnum til að koma á skipulegri ritiýni. Við héldum áfrarn á þeirri
braut að hafa blaðið sambland af stuttum hnitmiðuðum greinum og lengri yfirlitsgreinum. íslenskufræðingur las líka yfir allan
texta blaðsins og er óhætt að segja að hann hafi komið með rnargar þarfar ábendingar. Tóbaksvarnarnefnd styrkti
Læknanemann til að dreifa eintaki af greininni „Áhrif reykinga á frjósemi, meðgöngu og fóstur" til skóla og aðila í mæðravernd.
Kunnum við þeim kærar þakkir fyrir það. Af öðru má telja að við felldum niður drykkjulífsmyndirnar sem blaðið hefur verið
gagnrýnt fyrir enda eiga þær betur heima í systurblaðinu Meinvörpum, sem við vonum að fari að bæta sig eftir hyldjúpa lægð.
Við látum af ritstjórn og þökkunt öllum hlutaðeigendum fyrir samstarfið. Næstu ritstjórn sem ritstýrir hálfrar aldar gömlu tímariti
óskurn við góðs gengis og vitum við að hún mun gera enn betur. Lifið í lukku en ekki í krukku.
Gunnar og lngvar
Leiðari
Tý’ P 4 ■'
g;||gpÍISi»i
Kjaramál eru læknanemum hugleikin. í mörg ár
hafa kjör lækna farið versnandi. Þeir hafa að miklu
leyti bætt sér það upp með lengri vinnutíma og
bitlingabetli. Þetta hefur leitt til aukins álags og
hrapallegs samanburðar við þau lönd sem við
berum okkur gjarnan við. En hverju er um að
kenna? Óvinveittu ríkisvaldi? Að mikiu leyti
en eltki öllu. Til að ná betri kjörum þarf
að breyta viðhorfi almennings og stjórn-
valda til lækna og annarra heilbrigðis-
stétta. En það þarf líka að beina hernaðarmætti
lækna að stjórnvöldum. Til þess þarf samstöðu og
baráttuhug sem hefur algerlega skort.
Læknar hafa numið þrætu-
bókalistina með svo stórkostlegum
ýS; f hætti að stéttin er sundruð í ótelj-
andi fylkingar. Heimilislæknar, sér-
w v fræðilæknar, stofulæknar,
...- y 'ý ;; sjúkrahúslæknar, rann-
sóknalæknar, embættis-
læknar, stórbæjarlæknar, dreifbýlis-
læknar, unglæknar o.fl. berast á bana-
spjótum. Nýlega gengu þó heimilislæknar fram
fyrir skjöldu í kjarabaráttu sinni með lofsverðum
hætti. Samhent forysta með samhuga sveit að baki
sér réðist til atlögu. Löng og harðvítug kjaradeila
til lykta leidd nýlega. Færsla ýmissa auka-
greiðslna undir heildarlaun er sigur. Hins vegar
verður að viðurkennast að margir bera kvfðboga
fyrir að framselja samningavaldið til frambúðar til
Kjaranefndar. Fyrir nokrum árum var það helsta
baráttumál margra háskólmenntaðra manna að
komast undan Kjaradómi sem er að miklu ieyti
bakhjarl Kjaranefndar. Við vonum þó að
Kjaranefnd beri vit og gæfu til að bæta kjör heim-
ilislækna með rausnarlegum hætti. Jafnframt
vonum við að aliir læknar beri lfka vit og gæfu til
að bæta kjör sín. Því ef það verður ekki gert
munu margir okkar sem erum nú að nema
læknisfræði ekki hafa efni á því að
koma aftur til Islands að
loknu sérnámi. Það er