Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1996, Page 100

Læknaneminn - 01.04.1996, Page 100
Brynjólfur Y. Jónsson dr. med. INNGANGUR Beinbrot, liðhlaup og sinaslit eru algengar afleið- ingar áverka. Beinbrotum hefur farið fjölgandi síð- ustu áratugi og eru ástæður þessa tvær helstar: Aukið langlífi með vaxandi beinþynningu og ferða- og starfshættir nútíma samfélags, vélknúin farar- tæki og verkfæri. I yngri aldursflokknum er áverk- inn oftast meiri, háorkuáverki, og má þá frekar bú- ast við fjöláverkum og sköddun á húðþekju. Eldri og beinþunnir einstaldingar fá oftast brot eftir minniháttar byltur, en vegna lélegra beingæða og almennrar hrörnunar einstaklingsins geta brotin engu að síður verið erfið viðfangs og endurhæfing vandasöm. Liðhlaup fylgja svipuðu mynstri og brotin og sjást frekar hjá yngri einstaklingum en eldri. Hins- vegar eru sinaslit oftar afleiðingar hrörnunar og fara ekki að sjást fyrr en á miðjum aldri. Eftirfarandi lesning er miðuð við þarfir lækna- nema í héraði. Greinargerðin er sett upp þannig að farið verður yfir helstu áverka frá toppi til táar, al- gengustu brotum og liðhlaupum lýst og gefnar leiðbeiningar um heppilega meðferð sem hægt er að veita á heimavelli, hvað á að senda á sjúkrahús og hvað ber að varast. Samhliða verða gefnar leið- beiningar um gipstegundir og gipstíma ásamt helstu leiðbeiningum um endurhæfingu. Því hef ég ekki farið út í smáatriði varðandi innri festingar eða skurðaðgerðir. Ollum ætti að vera ljóst að beinbrotameðferð verður ekki gerð fullnægjandi skil í stuttri grein í Læknanemanum, einkum þar sem verulegar fram- farir hafa orðið síðustu áratugi og beinbrotameð- ferð er þegar orðin ein stærsta undirgreinin innan Brynjólfur er bœklunarlœknir og starfar á Sjúkrahúsi Akraness. bæklunarlækninga bæði austanhafs og vestan. Verða hér aðeins gefnar einföldustu „þumalfingurs- reglur“. Brotum á hryggsúlu, hendi og fæti ásamt lið- bandaáverkum á hné er alveg sleppt og verða þeim vonandi gerð skil síðar. Sú meðferð sem mælt er með hér er sú sem höfundi hefur gagnast best og er notuð í handbók aðstoðarlækna á Sjúkrahúsi Akra- ness. Meðferðin byggist á persónulegri reynslu höf- undar ásamt viðteknum venjum á þeim sjúkrahús- um sem hann hefur starfað við. Hafa ber í huga að læknar og stofnanir geta haft mismunandi skoðan- ir án þess að einhver einn þurfi endilega að hafa rétt fyrir sér. FYRSTA AÐKOMA AÐ ÚTLIMAÁVERKA 1) Þegar búið er að greina beinbrot, liðhlaup eða sinaslit hvort sem er með skoðun eða röntgenmynd verða ævinlega að liggja fyrir upplýsingar um eftir- farandi: i) Sögu; hvað gerðist, hvenær og hvernig. ii) Áverkann; hverskonar fall, hras eða umferðar- slys. iii) Staðbundið útlit; hvernig lítur húðþekjan út, púlsar, ástand tauga. iv) Líðan; verkir, dofi, ógleði, hvenær nærðist við- komandi síðast. v) Fjarlægja þarf skartgripi, aðþrengjandi fatnað o.fl. af öllum útlimnum. 2) Áður en meðferð hefst verður læknirinn að gera sér grófa mynd af eðli áverkans og sjúldingsins. Endanlegur árangur meðferðar er ætíð háður sam- blandi af útliti áverkans og eiginleika sjúklings. Sjúklingar sem fara ekki að fyrirmælum stefna allri meðferð í hættu. Þannig verður að vera ljóst: i) Hvort áverki er lokaður eða opinn. LÆKNANEMINN 90 1. tbl. 1996, 49. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.