Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1996, Page 10

Læknaneminn - 01.04.1996, Page 10
Vökvameðferð í útbláæðar Mynd 1. sjálfsögðu einnig hægt að nota fyrir stærri einstakl- inga, þegar þannig stendur á. Þegar valin er nál (leggur) til að setja í útbláæð ber fyrst að athuga til hvers á að nota hana. A ein- ungis að gefa lyf í hana eða á að gefa vökva í sídreypi? Hvernig vökva? Tæra vökva (þ.e. vatns- lausnir), plasma eða aðra blóðhluta, blóð, næring- arvökva og hve hratt? Ef talið er nauðsynlegt að geta gefið blóð mjög hratt þannig að sjúklingur fái verulegt magn á stuttum tíma er eðlilegt að velja grófa nál. Ef ein- ungis á að gefa lyf eða tærar lausnir er oftast hægt að velja granna nál, jafnvel þótt eigi að gefa þær hratt. Á mynd 2 sést að hægt er að gefa 31 ml/mínútu gegnum bláa, 0,8 mm (22G), nál eða 1,9 1/klst, sem eru 44,6 1/24 klst. Ljóst er því að slík nál næg- ir fyrir mikinn meirihluta þeirra sjúklinga sem gefa á tærar lausnir. Þess má geta að um þessa nál má gefa 40 1 af plasma á sólarhring eða 25,9 1 af blóði. Þessi nál nægir því í nær öllum þeim tilfellum þar sem ekki þarf að gefa verulegt magn af plasma eða VenflorbB) Neollön^ Gauqe 22G 20G 18G 17G 16G 14G 24G Ytra þuermál mm 0.8 1.0 1.2 1.4 1.7 2.0 0.6 Innra þvermál mm 0.6 0.8 1.0 1.2 1.4 1.7 0.4 Lengd mm 25 32 32 45 45 45 19 Vatn ml/mín 31 54 80 125 180 270 13 I/ klst. 1.9 3.2 4.8 7.5 10.8 16.2 0.8 I/24 klst. 44.6 77.8 115.2 180.0 259.2 388.8 18.7 10% glúkósa ml/mín 28 50 74 120 168 235 12 I/ klst. 1,7 3.0 4.4 7.2 10.1 14.1 0.7 I/24 klst. 40.3 72.0 106.6 172.8 241.9 338.4 17.3 Plasma ml/mín 28 48 69 108 156 225 12 l/klst. 1.7 2.9 4.1 6.5 9.4 13.5 0.7 I/24 klst. 40.3 69.1 99.4 155.5 224.6 324.0 17.3 Intralípíð ml/mín 26 46 67 108 154 222 11 100 mg/ml l/klst. 1.6 2.8 4.0 6.5 9.2 13.3 0.7 I/24 klst. 37.4 66.2 96.5 155.5 221.8 319.7 15.8 Blóð ml/mín 18 31 45 76 118 172 8 I/ klst. 1.1 1.9 2.7 4.6 7.1 10.3 0.5 I/24 klst. 25.9 44.6 64.8 109.4 169.9 247.7 11.5 Mynd 2. blóði á stuttum tíma. Um bleiku nálina, sem er 1,0 mm (20G), er hægt að gefa 54 ml/mín af vatni, sem samsvarar 3,2 1/klst og 77,8 1/24 klst. Þá er hægt að gefa 48 ml/mín. af plasma, sem er 2,9 1/klst og 69,1 1/24 klst um þessa nál eða 1,9 lítra af blóði á klukkustund sem samsvarar 44,6 lítrum af blóði á sólarhring. Því má ljóst vera að sjaldan er þörf á að gefa sjúklingi meiri vökva eða blóð en þetta nema í sambandi við slys eða stórar skurðað- gerðir. Til samanburðar má geta þess að um brúnu nálina sem er 2,0 mm (14G) er hægt að gefa 270 ml/mín af vatni, sem er 16 1/klst eða 388.8 1/24 klst. Gegnum þessa nál er hægt að gefa 172 ml/mín af blóði eða 10 1/klst sem verða 247,7 1/24 klst. Ljóst er því að einungis í undantekningartilfellum er þörf á slíkri nál. Lesendur geta sjálfir skoðað Mynd 2. Algengast er að notuð sé græn nál 1,2 mm (18G) í sambandi við svæfingar en með þeirri nál er hægt að gefa 4,8 1/klst af Ringer-Asetati og 2,7 1/klst af blóði og verður það að teljast ríflegt við venjulegar svæfing- ar. Þannig má sjá að sjaldan er þörf á að nota aðrar nálar en bláa, 0,8 mm (22G) eða bleika, 1,0 mm (20G). LÆKNANEMINN 8 1. tbl. 1996, 49. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.