Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1996, Page 17

Læknaneminn - 01.04.1996, Page 17
Ónæmisbæling í krabbameini viðtaka eru viðtakar ýmissa cýtókína (t.d. IL-2 og IL-4). Það er athyglisvert að T frumur einangrað- ar úr æxlum hafa oft eldd þessa viðtaka og fram- leiða lítið af cýtókínum. Möguleiki á hjálparboði er því lítill eftir þessari leið. Ýmsir aðrir viðtakar geta einnig starfað sem hjálparviðtakar in vitro en lítið er vitað um mikilvægi þeirra in vivo. Það er ljóst að aðferðir til að örva ónæmissvar T- frumna gegn krabbameinsæxlum gætu verið hjálp- legar í meðferð krabbameinssjúklinga. Verið er að rannsaka ýmsar aðferðir til að ná því marki og hafa sumar verið reyndar á dýrum og mönnum. Verður aðeins drepið á nokkrar þeirra og er vísað til nánari umfjöllunar í tilvitnunum (4-6). Skulu fyrstar nefndar tilraunir þar sem eitilfrumur hafa verið einangraðar úr ýmsum tegundum æxlisvefja, rækt- aðar utan líkamans með hjálp cýtókína og síðan skilað aftur inn í sjúklinginn. Þessar tilraunir gáfu rnisjafna raun, einstaka sjúklingur féldc talsverðan eða fullan bata en flestir svöruðu ekki meðferðinni. I öðrum tilfellum hafa æxlisfrumur verið einangr- aðar úr sjúklingum, gen sem skrá íyrir ýmis cýtókín sett inn í þær og frumurnar aftur settar inn í sjúkl- inginn. Þessar tilraunir eru enn á byrjunarstigi og ekki unnt að dæma hver árangur þeirra getur orð- ið. Að lokum skulu taldar tilraunir sem gerðar voru í músum á vexti æxla sem B7 genið var flutt inn í. Athyglisvert er að æxlisfrumum, sem óbreyttar gátu vaxið óhindrað í músastofnum, var hafnað þegar B7 genið hafði verið flutt inn í þær. Þessar rannsóknir sýna mikilvægi þess að T frumur fái viðeigandi hjálparboð ef þær eiga að verða virk- ar gegn illkynja æxlisfrumum. Líklegt er að þessi aðferð sé sértækari en framleiðsla cýtókína í æxlum þar sem B7 hefur einungis áhrif á þær T frumur sem komast í beina snertingu við æxlisfrumuna, en ekki aðrar frumur líkamans. Vitneskja um hvernig ónæmiskerfið svarar ill- kynja æxlisvexti gæti leitt til bættrar meðferðar krabbameinssjúklinga. Ef unnt væri að virkja frumur ónæmiskerfisins til að ráðast gegn æxlinu rnætti ætla að betri árangur næðist við hefðbundna krabbameinsmeðferð þar sem ónæmiskerfmu yrði ætlað að eyða þeim illkynja frumum sem enn lifðu eftir skurð-, geisla- og/eða lyfjameðferð. Víst er að mikilla framfara má vænta á þessu sviði á næstu árum. HELSTU HEIMILDIR: 1. North, R.J. & Bursuker, I. 1984. J. Exp. Med. 159, 1295-1311 2. Zier, K., Gansbacher, B, & Salvadori, S. 1996. Immunol. Today 17, 39-45 3. O’Sullivan, C., & Lewis, C.E. 1994. J. Pathol. 172, 229- 23 4. Cai, Q., Rubin, J.T., & Lotze, M.T. 1995. Cancer Gene Ther. 2, 125-136 5. Pardoll, D.M. 1995. Ann. Rev. Immunol. 13, 339-415 6. Baskar, S., Ostrand-Rosenber, S., Nabavi, N., Nadler, L.M., Freeman, G.J. & Glimcher, L.H. 1993. Proc. Natl. Acad. Sci. USA 90, 5687-5690 LÆKNANEMINN 15 1. tbl. 1996, 49. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.