Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1996, Page 26

Læknaneminn - 01.04.1996, Page 26
Stofnfrumur úr naflastrengsblóði. Til hvers? í öðru lagi er mögulegt að nýburar gangi með ógreindan erfðasjúkdóm sem myndi sjálfkrafa úti- loka viðkomandi einstakling sem beinmergsgjafa á fullorðinsárum (49). I þriðja lagi benda rannsóknir til að 25% barna með alvarlegan ónæmisbrest (Severe Combined Immunodeficiency Disease; SCID) hafi blöndu (chimerism) eigin eitilfrumna og eitilfrumna móð- urinnar (50). Til að ganga úr skugga um hvort þetta eigi sér stað í heilbrigðum ungabörnum hafa polymerase chain reaction (PCR) greiningar á MHC antigenum móður í NSB verið gerðar. Þær hafa yfirleitt alltaf sýnt að mengun er ekki til stað- ar. Þar sem mengun hefur fundist er hún svo lítil að álitamál er hvort hún hafi nokkra þýðingu við myndun GVHD (51). I fjórða lagi geti minna ónæmissvar í NSB verið ókostur í ígræðslum hvítblæðisjúklinga. Við ósam- gena ígræðslu beinmergs í hvítblæðisjúldinga hefur komið í ljós að minnkaðar líkur er á að sjúkdómur- inn taki sig upp að nýju þegar einhver GVHD er til staðar. Igræddar frumur hafi því einhver GVH áhrif en jafnframt virkni gegn hvítblæði (graft-vers- us-leukemia, GVL). Þar sem allt bendir til að NSB valdi minni GVH áhrifum geti GVL virkni einnig verið minnkuð (42). BANKAR FYRIR NSB Eftir að ljóst varð að mögulegt væri að geyma stofnfrumur úr NSB frosnar og halda nánast sömu líftölu hvítfrumna eftir þíðingu kviknuðu hug- myndir um stofnun NSB banka. I þeim er mögu- legt að geyma NSB sem hægt væri að grípa til ef eigandi þess fengi síðar á lífsleiðinni illkynja sjúk- dóm þar sem beinmergsígræðsla gæti komið að gagni. Geymsla ósamgena NSB er hins vegar enn betri kostur því hægt er að safna miklu magni NSB með ólíka MHC gerð og grípa strax til þess ef á þarf að halda. I miklum meirihluta ósamgena ígræðslna er beinmergur notaður en afar erfitt og tímafrekt getur reynst að finna hentugan gjafa (26). Fyrsti NSB bankinn var stofnaður í New York árið 1992 við New York Blood Center undir stjórn Dr. Pablo Rubinstein (49). Strax í upphafi voru all- ar einingar safnaðs NSB settar í rækt til að meta fjölda kólóníumyndandi frumna sem er mælikvarði á fjölda stofnfrumna (mynd 3), frumurnar í NSB taldar og aðferðir við söfnun blóðsins slcráðar. Á þennan hátt var hægt að ákvarða fjölda og gerð (rauðar, hvítar) kólónía og finna fylgni milli safn- aðs rúmmáls, fjölda hvítfrumna, fæðingar og ann- arra þátta. Eðlileg vinnsla á NSB felst í einangrun hvítfrumna, sýklagreiningu á plasma (bakteríur, veirur), MHC greiningu á heilblóðssýni og taln- ingu kólóníumyndandi frumna. Lítið brot af lif- andi eitilfrumum og sterílu plasma er einnig fryst til samanburðar síðar. NSB er blandað dimethyl sulfoxide (DMSO), sem varnar ískristallamyndun, og síðan fryst með stigvaxandi kulda í sérstökum frystum og geymt í fljótandi köfnunarefni (52). Árið 1995 hafði 4300 einingum af NSB verið safnað við New York Blood Center og þær fullunn- ar. Banldnn hefur séð fyrir vef til 34 ígræðslna á 11 stöðum og hefur árangur af þeim verið misjafn. Sem dæmi má nefna voru 23 ígræðslur vegna ým- issa tegunda hvítblæðis og varð mergtaka í 11 til- vikum (49). Bönkum fyrir NSB hefur síðan verið komið upp á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum og Evrópu. I Blóðbankanum hefur NSB verið notað til að staðla aðferðir sem nauðsynlegar eru að hafa til taks við stofnfrumuígræðslur. Þar er um að ræða söfnun og einangrun einkjarna hvítfrumna, CD34 mæl- ingar með flæðisjárgreiningu (í samvinnu við Rannsólcnarstofu í ónæmisfræði) og kólóníurækt- anir fyrir og eftir frystingu í fljótandi köfnunarefni (sjá mynd 3). Niðurstöður þessarar vinnu verða kynntar á öðrum vettvangi. FRAMTÍÐIN Stofnfrumur úr NSB hafa komið mikið við sögu í rannsóknum í genalækningum. Sú hugmynd að flytja heilbrigt gen inn í blóðmyndandi stofnfrumur sem meðferð við arfgengum blóðsjúkdómi er at- LÆKNANEMINN 20 1. tbl. 1996, 49. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.