Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1996, Side 61

Læknaneminn - 01.04.1996, Side 61
Guðmuadur Jón Elíasson Mannkynið er nú að hefja aðra öld í sambúð sinni við röntgengeislann. Fyrsta röntgenmyndin var tekin í desember 1895 þegar Wilhelm C. Röntgen tók mynd af hendi konu sinnar. A þessum 100 árum hafa ótrúlegar framfarir orðið í mynd- greiningu sjúkdóma. Enginn afl-timi líkamans er lengur huiinn sjónum. Ekki er lengur aðeins til myndgreining með röntgengeislum heldur hafa nýjar rannsóknaraðferðir komið til og þróast óð- fluga undanfarna áratugi. Eiinar nýju rannsóknar- aðferðir byggjast ýmist á geislun, hljóð- eða rafseg- ulbylgjum. Með öflugum tölvum er nú orðið mögulegt að skapa myndir af öllum líffærum lík- amans. Upplýsingarnar sem fengnar eru með myndgreiningaraðferðunum eru geymdar á staf- rænu formi og unnt er að vinna með þær á ótrúleg- an hátt þar sem jafnt heilbrigð sem sjúk líffæri eru skoðuð í ýmsum sniðum og í þrívídd. Tæknifram- förum eru nánast engin takmörk sett. Ohugsandi er því að sjá fyrir endann á þróun myndgreiningar. Hið eina sem getur takmarkað frekari framfarir er kostnaðurinn. Vissulega er tækjabúnaður og þró- unarstarf dýrt. Miklu er þó fórnandi fyrir nákvæma sjúkdómsgreiningu því að fyrsta skrefið í með- höndlun og lækningu allra sjúkdóma er rétt grein- ing. Hér á eftir verður fjallað lauslega um stöðu læknisfræðilegrar myndgreiningar eins og hún er best nú á dögum og hverjar ég tel framtíðarhorfur vera. Færst er þar nokkuð mikið í fang og verður einungis stiklað á stóru. RÖNTGENMYNDGREINING Röntgengreining er myndgreiningaraðferð sem Guðmundur er sérfrœðingur í geislagreiningu og starfar í Domus Medica byggist á röntgengeislum, jónandi geislum. Ennþá eru röntgenrannsóknir langalgengustu myndgrein- ingaraðferðirnar. Röntgentæki nútímans eru orðin mjög fullkomin í samanburði við fyrstu gerðir og mögulegt er að geyma og skoða allar röntgenrann- sóknir á stafrænu formi. Filmur, framköllun og raunar öll „framleiðslustig“ hafa þróast gífurlega. Allt auðveldar þetta læknum að komast nær réttri greiningu. Venjulegar röntgenrannsóknir hafa skipt sköpum í læknisfræði þessarar aldar og hin hefðbundna röntgenrannsókn á ennþá langa lífdaga fyrir hönd- um. Röntgenmynd, t. d. af lungum og beinum, mun halda velli um ókomna tíð enda er um ein- falda og ódýra rannsókn að ræða. Ugglaust munu þó venjulegar röntgenmyndir víkja fyrir nýrri tækni á mörgum sviðum. Tölvusneiðmyndatæknin (TS) hefur slitið barns- skónum en er þó ennþá í stöðugri þróun. Aukinn hraði og myndgæði verða með hverri nýrri kynslóð tölvusneiðmyndatækja. TS rannsókir munu senn gera kleift að taka fullkomnar kransæðamyndir sem þá verður mögulegt að gera án kransæðaþræðingar. Þrívíddargerð tölvusneiðmyndarannsókna er orðin þannig að með því að sitja við tölvuskjá með gleði- gand (joystick) í hendi má fara í ferðalag um lík- amann þar sem akbrautin er t.d. lungnaberkjur, slagæðar eða gallvegir. Þannig er mögulegt að skoða nánast allan líkamann. Skuggaefni sem notuð eru við röntgenrannsókn- ir eru nú mun betri en áður fyrr, bæði hreinni og hættuminni. Röntgenslagæðamyndatökur (ang- iographia) hafa gert mögulegar viðgerðir á þrengd- um æðum þar sem unnt er að staðsetja þrengingar með mikilli nákvæmni sem skurðlæknir gerir síðan LÆKNANEMINN 53 1. tbl. 1996, 49. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.