Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1996, Page 90

Læknaneminn - 01.04.1996, Page 90
péfimmtíuogþrír... sem einskonar örþrifaráð, stuðlar p53 að því að fruman undirgengst apoptósu. Dæmi um þetta eru áhrif sólarljóss á húðfrumur. Sólarljós á tiltölulega greiðan aðgang að stærsta líffæri líkamans, húðinni. Með minnkandi ósoni í gufuhvolfi jarðar kemst sí- aukið magn útfjólublárra geisla sólarljóssins til jarðar og þegar þeir skína á húðfrumur okkar geta þeir skemmt erfðaefnið, einkum með myndun pyrimidintvennda. Þau áhrif sólarljóssins sem við verðum vör við er þegar húðin brennur og flagnar síðan af. Þá eru frumurnar að gangast undir apoptósu með p53 í aðalhlutverki. P53 GALLAÐ/ÓVIRKT Nú höfum við séð hvernig p53 sinnir starfi sínu sem erfðavörður en hvað skyldi gerast þegar p53 er gallað og óstarfhæft? Aður hefur komið fram að mýs án p53 gens þroskast á eðlilegan hátt. Þær eru þó ekki alveg eðlilegar því þær fá mjög snemma ýmsar tegundir krabbameina. Arfgengar stökk- breytingar í p53 eru afar fátíðar í mönnum en þekkjast í svokölluðu Li-Fraumeni heilkenni. Hins- vegar eru somatískar stökkbreytingar mjög algeng- ar og finnast í ríflega helmingi allra krabbameina en tíðni þeirra er mismikil eftir krabbameinsgerð- um. Þegar fruma er án starfhæfs p53 getur hún ekki brugðist við DNA-skemmdum, frumuskipt- ingar verða óhindrað og ýmsar skemmdir hlaðast upp í frumunni. Undir venjulegum kringumstæð- um myndi slík fruma gangast undir apóptósu en þegar p53 er gallað verður þessi apoptosa ekki og fruman getur því ekld dáið. Þess í stað eru auknar líkur á því að hún geti fjölgað sér og þannig vaxið út yfir eðlilegar nágrannafrumur sínar. Gallað p53 getur þannig örvað og viðhaldið krabbameinsþró- un og endurspeglast það m.a. í því að stökkbreyt- ingar í p53 geninu hafa marktæk áhrif á lífshorfur t.d. brjóstakrabbameinssjúklinga. Þá hafa á undan- förnum misserum komið fram vísbendingar um að geislun og ýmis krabbmeinslyf virki ekki á frumur með stökkbreytt p53 en þessi meðferðarform stuðla einmitt að apoptósu fruma í örum vexti. Það sýnir einnig mikilvægi p53 í öðru ljósi að ýmsar veirur, þessar örsmáu „lífverur“ sem bera ein- ungis með sér það sem er þeim lífsnauðsynlegt, hafa engu að síður prótein sem bindur og óvirkjar p53. Þannig er veirunum kleift að leggja undir sig starfsemi frumunnar án þess að p53 hindri þær. AÐ LOKUM Þrátt fyrir að hér hafi aðeins verið stiklað á stóru um hlutverk p53 og ekld minnst á alla eiginleika þess, má sjá að próteinið gegnir mjög flóknu hlut- verki. Stökkbreyting á geninu hefur því víðtækari áhrif en flestar aðrar breytingar og er auðveld leið til að setja allt úr skorðum í frumunni. NÝLEGAR YFIRLITSGREINAR: 1. Selinova G & Wiman KG: p53: A cell cycle regulator act- ivated by DNA damage. Advances in Cancer Research, 66: 143-180 (1995) 2. Greenblatt MS, Bennett WP, Hollstein M & Harris CC: Mutations in the p53 tumor suppressor gene: clues to can- cer etiology and molecular pathogenesis. Cancer Research, 54: 4855-4878 (1994) LÆKNANEMINN 80 1. tbl. 1996, 49. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.