Læknaneminn - 01.04.1999, Blaðsíða 89
Histal (cetirizín)
Framleiðandi: Omega Farma ehf. Töflur; R 06 A E 07 RE Hver tafla inniheldur: Cetirizinum INN, díhýdróklórfð, 10 mg Eiginleikar: Cetirizfn blokkar Hi-viðtaka, en hefur nánast engin áhrif á H?-
viðtaka. Lyfið hefur Iftil andkólfnvirk, adrenvirk og serótónfnlík áhrif. Lyfið hindrar histamfntengda snemmsvörun f ofnæmi og minnkar sækni eósfnófíla og þar með losun ýmissa boðefna I seinsvörun
boðefnisins, hefur lítil slævandi áhrif á miðtaugakerfið og eykur hvorki verkanir etanóls né díazepams. Frásogast hratt frá meltingarvegi og blóðþéttni nær hámarki eftir 1 klst. Próteinbinding f plasma
er um 93%. Helmingunartfmi lyfsins í blóði er um 10 klst. Verkun lyfsins hefst eftir u.þ.b. 25 mfn. frá inntöku, nær hámarki eftir 4 klst. og varir f a.m.k. 24 klst. Lyfið skilst að mestu óbreytt út f þvagi.
Lyfjahvörf breytast Iftið með aldri en helmingunartfmi lengist við nýrnabilun Ábendingar: Ofnæmisbólgur I nefi. Útbrot og kláði, sem stafa af histamfnlosun. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Skaðleg áhrif á fóstur hafa ekki komið fram við dýratilraunir. Reynsla af notkun lyfsins á meðgöngutfma er hins vegar Iftil sem engin og ætti þvf að
forðast slfka notkun. Lyfið skilst út í brjóstamjólk I verulegu magni og ætti ekki að nota það handa konum með barn á brjósti. Aukavorkanir: Algengar (>1 %): Munnþurrkur. Þreyta og syfja.
Milliverkanir: Engar þekktar. Athugið: Lyfið getur stöku sinnum haft slævandi verkun á heilann með minnkaðri eftirtekt og viðbragðsflýti. Þetta getur verið varasamt fyrir stjórnendur vóla og
ökutækja. Sjúklingar með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi geta þurft minni skammta en aðrir Skammtastærðir handa fullorðnum: Ein tafla (10 mg) á dag. Skammtastærðir handa börnum: Börn
12 ára og eldri: Ein tafla (10 mg) á dag. Þetta lyf er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Pakkningar og verð l.mars 1996: 10 stk.-543 kr; 30 stk.-1482 kr; 100 stk.-4607 kr.
HISTAL
(cetirizín)
- áhrifaríkt íslenskt ofnæmislyf
Omega Farma
Það kemst enginn undan ofnæmisvökum s.s. rykmaurum og frjókornum.
Fæstir sem hafa gæludýraofnæmi láta dýrin frá sér.
Því er áhrifarík lyfjameðferð góður kostur fyrir ofnæmissjúklinga eintaflaádag
sem vilja njóta lífsins.