Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Blaðsíða 43

Læknaneminn - 01.04.1999, Blaðsíða 43
Mynd 4. Mynd 5. andlitstaugarlömun, augnvöðvalamanir vegna mið- taugakerfisskemmdar (internuclear opthalmoplegia), rykkjóttar augnhreyfingar og augntif (nystagmus) á báðum augum. Væg fjórlömun var til staðar og merki um slingur við gang auk klaufsku við fingur-nef próf hægra megin. Sinaviðbrögð voru lífleg og tilhneiging til vöðvakippa í vinstra ökkla (ökklaklónus), en eðli- leg iljasvörun báðum megin. Reynd var háskammta sterameðferð án verulegs bata. Eftir þetta var við- komandi metinn meira en 75% öryrki og ljóst að hann yrði ekki fær um að gegna fyrri störfum. Nokkur bati kom á löngum tíma eftir þetta kast, en aftur bar á ver- snun síðar á árinu sem gengu nokkuð vel til baka. Beta-interferon meðferð var hafin í mars 1997 en miklar aukaverkanir komu fram af lyfinu, eins og máttleysi, hiti og slappleiki. Um svipað leyti fór að bera á stjarfaköstum og svefnvandamáli og vegna versnandi göngugetu fór viðkomandi á endurhæfing- arstofnun til þess að freista þess að ná fram betri færni. Endurhæfing leiddi til töluverðs bata á göngu- getu svo að einungis þurfti lítils háttar stuðning utan dyra við útskrift. I febrúar 1998 höfðu einkennin enn versnað, eink- um gönguhæfnin og þurfti viðkomandi göngugrind heimavið, mikinn stuðning utan dyra og hjólastól fyr- ir lengri vegalengdir. Önnur einkenni voru áfram- haldandi augnvöðvalamanir, taltruflun, máttleysi í tungu og slingur. Vöðvatónus var aukinn í öllum út- limum, einkum þó í vinstri hendi. Engin skynbrottföll voru til staðar. Hafði viðkomandi megrast um 5-6 kg á einu ári og hægðatregða var orðin verulegt vanda- mál. I júní 1998 höfðu einkennin versnað stöðugt með auknu máttleysi og slingri og verulegur stuðningur nauðsynlegur við allan gang. Minnið var orðið lak- ara. Háskammta sterameðferð var aftur reynd án verulegra áhrifa á sjúkdómsganginn. Segulómun sýndi vægar breytingar frá fyrri myndum, með aukn- um skemmdum í heilabrú (pons) (Mynd 5). Þessi einstaklingur fékk upphaflega bakslaga- hjöðnunarform sjúkdómsins, en sjúkdómurinn þróað- ist síðan í stöðuga versnun (chronic-progressive gerð). LOKAORÐ Þótt MS sjúkdómur hafi mikið verið rannsakaður er enn fjölmörgum spurningum ósvarað varðandi orsak- ir hans. Ný þekking um sjúkdóminn mun leiða til bættrar meðferðar og auka lífsgæði sjúklinga. Verður án efa áhugavert að fylgjast með niðurstöðum fram- tíðarrannsókna á þessum dularfulla sjúkdómi. HEIMILDIR 1. Poser CM. The dissemination of multiple sclerosis: a Viking saga? A historical essay. Ann Neurol 1994;36:Suppl 2:S231 - S43. 2. Weinschenker BG. Epidemiology of multiple sclerosis. Neurol Clin 1996:14:291-308. 3. Mc Michael AJ, Hall AJ. Does immunosuppressive UV radi- LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg. 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.