Læknaneminn - 01.04.1999, Blaðsíða 85
samtök alþjóðafélaga læknanema á Norðurlöndum sem haldinn var
í Kaupmannahöfn í apríl og var sá fundur vel heppnaður. Fulltrúar
Islands sóttu fundi SCORA og fundi Grænlandsverkefnisins svo-
kallaða sem nú er í þann mund að fara af stað og er forvarnarverk-
efni svipað því sem hér er að hefjast en verður starfrækt á Græn-
landi. Einnig var tekin sú ákvörðun að fundur FINO skyldi haldinn
á íslandi árið 2000. Er það spennandi verkefni og frábært tækifæri
fyrir íslenska læknanema almennt að kynnast kollegum sínum á
Norðurlöndunum. Er það von nefndarinnar að sem flestir íslenskir
læknanemar muni sjá sér fært að taka þátt í dagskrá fundarins.
Sumarstarfið gekk vel fyrir sig. í júní komu hingað tveir sænskir
læknanemar til að vinna rannsóknarverkefni og einn danskur
læknanemi kom í verknám á Landspítala. I júlí komu hingað 12
nemar í verknám og í ágúst 10 nemar í verknám. Gekk þetta allt vel
fyrir sig og áttum við gott samstarf við bæði stóru sjúkrahúsin í
Reykjavík. Stúdentaskiptanefnd sá um skipulagningu tveggja stór-
ra ferða fyrir nemana og voru það annars vegar ferð til Vestmanna-
eyja og hins vegar ferð sem farin var um Reykjanes. Einnig tók
nefndin þátt í skipulagningu óvissuferðar ásamt ELSA. Samning-
arnir sem gerðir höfðu verið fyrirfram voru illa nýttir af íslenskum
læknanemum og voru það einungis samningarnir til Barcelona sem
voru fullnýttir. Auk þeirra fór einn nemi til Prag, einn til Búdapest
og svo fóru tveir nemar af öðru ári í krufningaferð dönsku samtak-
anna til Tékklands. Þeir samningar sem gengu af voru nýttir af hin-
um Norðurlöndunum enda hafði verið ákveðið á FINO fundinum
að búa til sameiginlegan pott Norðurlandanna fyrir ónýtta samn-
inga. Tveir fulltrúar fóru svo á Aðalfund IFMSA sem haldinn var í
Mexíkó í byrjun ágúst. Þar voru gerðir nokkrir samningar um mót-
töku á skiptinemum fyrir næsta sumar en að fenginni reynslu síð-
asta sumars voru þeir að mestu einhliða en það þýðir að kostnaður
við komu nemans er borinn af honum sjálfum en Stúdentaskipta-
nefnd aðstoðar hann við að fá inni í starfsnám á sjúkrahúsi og finn-
ur honum húsnæði. Tveir fulltrúar frá Stúdentaskiptanefnd og einn
utan nefndarinnar hafa haft veg og vanda að skipulagningu for-
varnarverkefnis læknanema. Námskeið var haldið í september fyr-
ir læknanema þar sem boðið var upp á fyririestra og þjálfun í tján-
ingu.
F.h. Stúdentaskiptanefndar,
Þórhildur Kristinsdóttir,
formaður Stúdentaskiptanefndar
SKÝRSLA RÁÐNINGARSTJÓRA FÉLAGS LÆKNANEMA
Skólaárið 1998 - 1999 var nokkuð merkilegur tími fyrir Félag
Læknanema (F.L.) Ráðningarkerfið spilaði þar stóra rullu, en
vegna þess ákváðu nokkuð margir 6. árs læknanemar að standa
utan félagsins. Þetta var náttúrulega afar slæmt fyrir félagið eins og
gefur að skilja, bæði fjárhagslega og svo ekki síður vegna þess að
við læknanemar erum lítili hópur sem þarf nauðsynlega að vera
samstilltur til þess að við getum með sem bestum hætti staðið vörð
um hagsmuni okkar.
Framboð
Samtais voru í boði 7.616 dagar í vinnu þetta skólaárið, sem er
888 dögum meira en í boði var skólaárið 1997 - 1998; þar af voru
4.130 dagar á sjúkrahúsum og 3.486 dagar í héraði (sjá töflu).
Mönnun var tæplega 82% (3.372) í stöður á sjúkrahúsum og rúm-
lega 72% (2.516) í stöður í héraði og er það svipuð prósenta og
skólaárið 1997 - 1998.
Þessi heildaraukning vinnuframboðs er athyglisverð í ljósi þess
Dagar í héraði: Dagar á sjúkrahúsi: Samtals:
1995 - 1996 1.321 3.639 4.958
1996 - 1997 2.494 3.072 5.566
1997- 1998 3.876 2.852 6.728
1998 - 1999 3.486 4.130 7.616
að einungis er hér talin sú vinna sem unnin var af félögum í F.L.
Dagar f héraði voru færri en árið á undan og skýrist það sennileg-
ast af tvennu. Annars vegar af því að hluti 6. ársins stóð utan fé-
lagsins og vann á eigin vegum og hins vegar af því að læknar á
landsbyggðinni hafa sumir hverjir verið afar duglegir við að nappa
unglæknum og sérfræðingum í afleysingar hjá sér.
18 læknanemar unnu meira en 100 daga á síðasta skólaári. Sá
sem mest vann var með 158 daga, ráðningarstjóri var 16. í röðinni
með 108 daga.
Reglugerð Félags Læknanema um ráðningar
Eins og að framan greinir stóð hluti 6. ársins utan F.L. sl. skóla-
ár. Uppgefin ástæða þess að viðkomandi læknanemar ákváðu að
vera utan félags var gömul og alltof mikið notuð lumma, þ.e. ráðn-
ingarkerfið er heimskulegt, læknanemar verða af vinnu vegna þess,
læknar fá ekki afleysingu vegna þess og þar fram eftir götunum. I
kjölfar þessa klofnings var ákveðið að staldra aðeins við og skoða
málin. Ráðningarstjórar sendu spurningalista varðandi ráðningar-
kerfið til lækna í þeim tilgangi að kanna hvort í raun og veru væri
jafn megn óánægja meðal lækna með ráðningarkerfið og sumir
læknanemar hafa haldið fram. í mars sl. héldu svo ráðningarstjór-
ar F.L. í samráði við stjórn F.L. ráðstefnu fyrir læknanema um
ráðningarkerfið þar sem niðurstöður könnunarinnar voru kynntar
og málin rædd.
Niðurstöður könnunarinnar voru athyglisverðar og að mínu mati
mjög ánægjulegar. Svörun var rúmlega 51% og í ljós kom að yfir-
gnæfandi meirihluti þeirra lækna sem svöruðu höfðu verið ánægð-
ir með þá afleysingu sem þeir höfðu fengið í gegnum ráðningar-
kerfið, 86% þeirra sögðu að ráðningarkerfi F.L. hefði reynst sér vel
eða oftast vel og nánast allir ætluðu sér að nota það í framtíðinni ef
ekki tækist að manna læknisstöður á annan hátt. Betur er fjallað um
könnunina annars staðar í þessu blaði og auk þess er stefnt að því
að birta niðurstöður hennar á heimasíðu F.L.
Nokkrar breytingar voru gerðar á reglugerð F.L. um ráðningar á
aðalfundi í apríl sl., m.a. á grundvelli umræðna sem fram fóru á áð-
urnefndri ráðstefnu. Þær breytingar voru að mínu mati allar til
góðs, en samandregið má segja að þær hafi opnað kerfið um leið
og þær loka nokkuð vel á pot læknanema.
Afbrot og sektir
Tveir læknanemar voru sektaðir, báðir fyrir að taka stöðu fram-
hjá ráðningarkerfi F.L. Báðir voru sektaðir um 5.000 kr. og námu
heildarsektir þvf 10.000 kr.
Ráðningargjöld
Ráðningargjöld skólaárið 1998 - 1999 voru 1.500 kr. fyrir mán-
uð á sjúkrahúsi og 1.800 kr. fyrir mánuð í héraði og hækkuðu þau
því ekki frá árinu áður. Hins vegar Iagði ég til á stjórnarskiptafundi
í septemer 1998 að rukka ekki ráðningargjöld fyrir vinnu skv. 48
klst. reglunni og var það samþykkt. Við útreikninga ráðningar-
gjalda er mánuður 30 dagar.
Gíróseðlar með ráðningargjöldum hafa verið sendir út og eru
læknanemar hvattir til að greiða þá sem fyrst.
LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.
81