Úrval - 01.12.1964, Síða 44
42
ÚRVAL
uppruna, en Sankti Kláus fæddur
af heiðnum foreldrum? Flest
fólk álítur, að þessu sé öfugt
farið, en séra Francis X. Weiser,
einn helzti fræðimaður Banda-
ríkjanna á þessu sviði, heldur
þessu fram.
Árum saman var hátíð Sankti
Nikulásar haldin þ. 6. desember
i Evrópu á þann hátt, að börn-
um voru gefnar gjafir, en hann
er verndardýrlingur þeirra. Um
hann er ekki margt vitað. Hann
var biskup í Myra i Litlu-Asíu,
og sagt er, að hann hafi verið
sérstaklega góður börnum og
þá einkum munaðarleysingjum,
þar eð hann var sjálfur munað-
arleysingi. Hann á að liafa skil-
ið eftir smápeninga í gluggakist-
um heimila þeirra oft og tíðum.
Hollenzkir innflytjendur, sem
stofnuðu amerísku nýlenduna
Nieuw Amsterdam, er seinna
varð New York, fluttu með sér
þann sið að gefa börnum sínum
gjafir í nafni hans. Þeir kölluðu
hann Sinter Klaas. Þegar Eng-
lendingar tóku síðar að flytja
til Ameríku, vildu börn þeirra
líka fá einhvern næturgest um
jólin, en ekki dýrling. Margir
innflytjendanna voru meðlimir
öldungakirkjunnar og héldu ekki
daga dýrlinga hátíðlega.
En Engilsaxar þessir þekktu
til norrænna goðsagna. Einn
hinna gömlu, heiðnu guða var
Þór. Hann var góður bændum
og búaliði, glaðlegur, roskinn
karl með sítt, hvítt skegg. IJann
var rjóður á hörund, og eldur-
inn var hans tákn, en arinn
heimilisins hans helgireitur.
Hann bjó á norðurslóðum, en
stundum stökk hann upp i vagn-
sinn, sem dreginn var af tveim
hvítum geithöfrum, og þeysti í
vagni sínum um loftin og smaug
niður um reykháfa til þess að
komast að arninum, sínum
helgireit. Kannizt jiið við hann?
Englendingar höfðu það fyrir
venju að skiptast á gjöfum á
jólunum í stað 6. desember, og
því var það ekki skrýtið, að
Sankti Kláus fékk atvinnu sem
sendisveinn um jólin. Sankti
Kláus er ósvikinn amerískur
þcgn.
í mörgum evrópskum löndum
er það Jesúbarnið, sem sendir
gjafirnar, og englarnir, sem
koma með þær. Þjóðverjar kalla
Jesúbarnið Christkindel (Krists-
barn). Þegar Þjóðverjar fluttu
til Ameríku í stórhópum, þá
breyttu hinir nýju nágrannar
þeirra nafninu í Kris Kringle,
og því miður varð Kris Kringle
hið sama og Sankti Iíláus i hug-
um þeirra.
Jólatréð hefur því miður einn-
ig i töluvert ríkum mæli, glatað
þýðingu sinni sem trúarlegt tákn.
En það er ekki of seint að gæða