Úrval - 01.12.1964, Qupperneq 78
76
ÚRVAL
var einstaklega iSinn og liag-
sýnn í búsýslunni. Þó var hann
enginn kraftajötunn og því sið-
ur, að liann bolaðist áfram við
verk sitt. Hann var meðalmaður
á vöxt og fremur grannvaxinn,
lipur og laginn við alla vinnu
og ætlaði sór aldrei um of. Hann
notaði tímann vel. Því til sönn-
unar skal hér tilfært litið dæmi.
Síðumenn fóru í kaupstað til
Vikur, eftir að verzlun hófst
þar. Voru menn venjulega fjóra
daga i „ferðunum“, sem kallað
var, því að vegur er langur og
yfir vötn að fara, svo að gisting-
ar þurfti með bæði á leiðinni
og i kaupstaðnum. En Oddur
hafði annan hátt á. Honum þótti
óþarft að tefja sig á þvi að sofa.
Hann fór til kaupstaðarins og
heim aftur i einni lotu án þess
að sofa, nema rétt á meðan hann
þurfti að æja hestunum. „En
gott var að geta hallað sér út
af, þegar heim var komið“, varð
honum stundum að orði, þegar
talið barst að þessum kaupstað-
arferðum hans.
Um þessar mundir bjó i Skál
BjörgGuðmundsdóttir frá Svarta-
núpi, systir Guðmundar, sem
þáttur er af í Úrvali 1962, með
börnum sínum. Hún var þá orð-
in ekkja fyrir allmörgum árum.
Skál er ein af stærstu jörðum í
sýslunni. En i Skaftáreldum
galt hún hið mesta afhroð, eins
og fleiri jarðir á þessum slóðum.
Allt láglendið fór undir hraunið,
sem þrýsti Skaftá upp að fjall-
inu. Bærinn fór undir vatn, og
engjar og tún eyðilagðist. Fyrir
eldinn var Skál talin ein af beztu
jörðum á landinu, enda lönguih
höfðingjasetur, en eftir áfallið
var hún rúin engjum og túnum
og víðáttumiklum skógi, sem óx
undir fjallinu. Skálarfjall er
bratt og hömrótt, en sauðfjárbeit
er þar góð. Heyskapur var þar
fremur rýr, menn urðn að heyja
i mýrum inn um alla heiði, og
var þvi nauðugur einn kostur
að reiða sig á beitina. Tengda-
sonur Bjargar húsfreyju i Skál
hafði hug á að komast á liægari
jörð, og það varð þvi úr, að
þau höfðn jarðaskipti við Odd
á Skaftárdal. Hann fluttist að
Skál i fardögnm árið 1909 og
bjó þar síðan allan sinn búskap.
Skál er erfið jörð fyrir ein-
yrkja, eins og búskaparhættir
voru þá. En Oddi búnaðist þar
vel og varð fljótt sæmilega efn-
um búinn á mælikvarða þess
tima. Hann lagði mikla stunjd
á að hafa sauði, enda jörðin vel
til þess fallin vegna heitarinnar.
Harðfengi Odds var viðbrugðið,
er hann var að beita fé sínu i
misjöfnum veðrum. Oft mun
hann hafa komizt í hann krapp-
an við að bjarga kindum úr
svelti og sýndi þá bezt dirfsku