Úrval - 01.12.1964, Síða 83
ÓGLEYMANLEGUR MAÐUR
81
sagði þær, myndi það hafa ver-
ið verðmæt viðbót við bók-
menntir okkar. Engin leið er að
gefa sýnishorn af frásögn hans,
en þeim, sem heyrðu hann segja
frá, þegar honum tókst hezt upp,
verður það ógleymanlegt. Sauð-
kindurnar urðu að litríkum per-
sónum, hver með sínum glöggu
einstaklingseinlcennum í frásögn
um hans. Kolla og Bílda, Flekka
og Hyrna — allt urðu þetta sjálf-
stæðar persónur, svo að ekki sé
nú minnzt á hann Lambatungna-
Arnhöfða, sem álpaðist niður á
syllu eina í gljúfrinu, þar sem
ekkert beið hans annað en hung-
urdauðinn, ef ekki tækist að
bjarga honum úr sveltinu. Það
var ekld skynlaus skepna, sauð-
urinn sá, því að á meðan Oddur
fikraði sig niður ófært einstig-
ið til þess að freista að bjarga
honum, stóð hann grafkyrr og
virtist fylgjast með glæfraför-
inni. Það var eins og skepnunni
væri Ijóst, að hver minnsta hreyf
ing gæti hæglega orðið bani
þeirra beggja. — Nei, það er
ekki til neins að freista að end-
ursegja sögur Odds um kindurn-
ar, þær voru svo óvenjulegar
bæði að orðfæri og stíl frásagn-
arinnar, að úr því varð hrein
list.
Hér verður nú látið staðar
numið. Ég hef freistað að draga
upp mynd af manni, sein verð-
ur mér ógleymanlegur, þó að
lífsferill hans liafi í rauninni
ekki verið neitt óvenjulegur.
Mér er vel ljóst, að það hefur
hvergi nærri tekizt eins og ég
hefði viljað og vert væri. Hér
var ekki um neinn sérstakan
athafnamann að ræða, þjóðskör-
ung eða jafnvel framámann
sveitar sinnar, en slíkra manna
er getið í annálum, en mér finnst
að í þessum manni hafi þeir
eiginleikar búið í ríkum mæli,
sem gera það skiljanlegt, að ís-
lenzka þjóðin gat þraukað gegn-
um hörmungar og óáran, án þess
að glata hinu bezta í sjálfri sér.
Og það er vist, að þegar ég
heyri minnzt góðra og sanrira
manna, kemur mér Oddur Sig-
urðsson í Skál oftast í hug.
YANDAÐU MÁL ÞITT.
Framhald af bls. 59.
1. hindrun — 2. óþokki. — 3. njóli
— 4. heilsuveill — 5. konungur
•— 6. endalaust — 7. skrjáfa 8.
ofsakæti, skap — 9. men ■— 10.
staulast — 11. mórauð á kvið
og aftur á milli fóta. —
12. grár með dökkum (rauðum)
yrjum, moldóttur 13. ólmur af
fjöri, fífldjarfur 14. himintungl
15. vinna vel 16. endurtaka 17.
það er ekki amalegt 18. að komast
á snoðir um e-ð