Úrval - 01.10.1972, Qupperneq 9

Úrval - 01.10.1972, Qupperneq 9
ÞEGAR NAMAN SPRAKK 7 voru á valdi elds, voru full af banvæn- um reyk, ryki og gasi. Námueigendur voru greinilega i vanda staddir. Hve lengi var unnt að halda þessu hættuástandi án þess að verða ábyrgðarlaus i reyndinni? Og þó, hvernig var unnt að loka dyrunum fyrir veikum vonum ættingjanna án þess að virðast skeytingarlaus um þjáninguna eða hugsa meira um námuna en mennina? Eyðingaraflið, sem eldurinn i djúpum námunnar hafði skapað, kom glöggt I ljós á föstudaginn, þegar tvær steinsteypuhettur, 15 tonn hvor, þeyttust eins og steinmolar upp úr göngunum. Seinna það kvöld, kom yfirmönnum i hug að nota stiflur úr muldu kalki til að hemja eldinn. 35 bflförmum af efninu var hvolft i opin. Þessir „tappar” héldu. Fólk er reiðubúið að hafa áfram ,,samúð”. Tvær björgunarsveitir fóru siðla á sunnudagskvöldið niður Atha Run opið, skiptust i tvær áttir, og tóku með varúð að kanna austur- og vesturhluta námunnar. Þeir blésu i horn og hrópuðu og hlustuðu eftir svari. Ekkert rauf hina geigvænlegu þögn nema bergmálið eitt. Á miðvikudag varð sprenging i Mahangöngunum, þar sem áður hafði verið kyrrt. Daginn eftir ákváðu björgunarmenn að gera örvæntingar- fulla lokatilraun til að ná sambandi við einhverja þá, sem kynnu að vera á lifi. Þeir sökktu sirenu niður i borholu, sem hafði verið gerð á göng, þar sem vitað var, að menn höfðu verið við vinnu. Sirenan var látin flauta i tuttugu min- útur i þessum vitisgöngum, sem hefðu getað verið i þvi helviti, sem Dante reit um. Síðan var ljósi og hátalara sökkt þar niður. Mennirnir biðu i tvær klukkustundir. Þeir imynduðu sér, að ómur raddar heyrðist eða einhver væri að berja niðri i göngunum, enda var þeim efst i haga, að þessi andartök mundu verða endalok þeirra, sem enn kynnu að vera þar lifandi. Þeir gátu samt einungis heyrt vatnsdropana detta af enda borsins þar niöri. Þá niu daga, sem voru liðnir siðan fyrsta sprengingin varð, höfðu orðið tuttugu meiri háttar sprengingar aðrar og margar smærri, sem skóku Farmington-námuna. Hin siðasta varð föstudaginn 29. nóvember. Corcoran forseti námufélagsins gekk siðla þess dags inn i James Fork kirkjuna i Farmington og sagði ættingjum hinna dauðadæmdu manna, sem þar höfðu safnazt saman, að hann neyddist til að loka námunni. Sumir ættingjanna tóku þessari ákvörðun, sem þeir höfðu svo lengi óttazt, i þögulli sorg. Flestir gátu það ekki, og Corcoran var sjálfur i mikilli geðshræringu. Prestur hóf bænalestur, en hann lauk bæninni ekki. Orð hans drukknuðu i grátinum, sem barst um litlu kirkjuna. Laugardagsmorgun 30. nóvember var siðasta lokan komin fyrir námuopin. Þannig lauk vakt námumannanna i „kattarauga- sveitinni”, sem höfðu farið til átta stunda vinnu tiu dögum áður. Fólk um gervöll Bandarikin fylltist skelfingu, samúð með fórnardýrunum og ættingjum þeirra. Mönnum fannst, að eitthvað þyrfti að gera til að koma i veg fyrir slika atburði. Fólk skildi þó ekki, að hinn raunverulegi harmleikur var jafnvel fremur en sprengingin i námunni þau félagslegu og efnahags- legu vandamál, sem skópu aðstæðurnar, sem námumenn vinna við. Fólk var reiðubúið að sýna sömu „skelfingu og samúð” næst þegar slikir atburðir gerðust. Og framvegis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.