Úrval - 01.10.1972, Side 13

Úrval - 01.10.1972, Side 13
GALDRAR A VERÐBRÉFAMARKAÐINUM 11 þess, sem fólkið hefur verið að velta fyrir sér þessa viku og þennan mánuð. Svo ef þú þekkir einhverja leið til þess aö finna, hvað fólk er að hugsa um — ef þú getur fengið heildarniðurstöðu þessara milljóna hugsana — þá veiztu I stórum dráttum, hvernig tölurnar verða i kauphöllinni á morgun.” Ég gat ekki gert mér grein fyrir hvort þessi maður var snillingur eða vitleysingur. Allt viðtalið hafði á sér óraunverulegt snið. Var þetta virkilega að ske á árinu 1970? Mér fannst ég staddur einhversstaðar á bláókunnugum stað, fjarri heimahögunum, fjarri öllu þvi, sem ég kunni skil á. „Höfuðið á mér virðist vera ein- hvers konar móttökutæki fyrir þessar milljónir þankabrota.” hélt T.O. Tulley áfram. ,,Ég finn, þegar áhugi er að vakna og þegar hann er að fjara út. Ekki þó i hvert skipti, eins og þú getur skilið, en nógu oft.” Hann leit skyndilega beint framan i mig brúnu augunum sinum. „Heldurðu, að ég sé geggjaður, ungi maður?” „Auðvitað ekki,” sagði ég alltof snöggt. Hann flissaði. En svo gaf hann mér visbendingu . „Ég finn i loftinu i kvöld mikinn áhuga fyrir kaupum,” sagði hann, „en það ristir ekki djúpt. Ég meina, að það er nógu mikið til þess að keypt verði sérstaklega mikið, en svo mun það fjara út, svo að segja.” „Mikið keypt . . .fjara út?” „Já, taktu bara eftir. A morgun verður einhver mesta verðhækkun, sem við höfum kynnzt vikum saman. Verðbréfavisitalan mun hækka um 10 stig. En svo mun hún smáhjaðna niður, eftir þvi sem liður á vikuna Sjáðu bara til.” Við lukum við það, sem eftir var i glösunum, og röltum saman út á horn. T.O.Tulley steig inn i lúxusbflinn sinn, en ég horfði á eftir rauðum aft- urljósunum, sem spegluðust i votri götunni, þar til þau hurfu fyrir horn. Verðbréfavisitalan hækkaði um 11,02 stig daginn eftir, en hjaðnaði niður þegar leið á vikuna. Stjörauspáin. Madeleine Monnet trúir stjörnu- spánni. Hún er kona um fertugt, býöur af sér góðan þokka, og indæl i viðkynningu. Hún er fráskilin. Þegar maðurinn fór frá henni, lét hann henni litið eftir. Hún átti eitthvert smáræði i sparisjóðsbók, sem var eins og dropi i hafið, þegar áhugi hennar beindist að verðbréfamarkaðnum. Núna á hún Ibúð I Kansas og aðra l Larchmont i New York, kádilják, minkakápur, tylftir af demöntum, og góðar vonir um að verða milljónamæringurd dollurum, auðvitað), áður en hún kveður þennan heim. „Það á ég stjörnufræðinni að þakka,” segir hún viðskiptavinum sinum og nemendum. Hún býður einstaklingum ráðgjöf varðandi verð- bréfakaup og sölur. Hún heldur einnig námskeið i stjörnufræði, þar sem hún leibbeinir hópum fólks verðbréfa — stjörnuskoðun. „Én ég hætti lika minum eigin fjármunum til þess sem ég fullyrði við aðra.” segirhún, og það neyddi mig til að taka hana hátiðlega frá byrjun. (Það eru nefnilega svo margir spámenn, sem alls ekki veðja sjálfir á það, sem þeir eru að segja öðrum.) „Ég hef dálitið skritinn smekk og : er þvi nokkuð dýr i rekstri, en rekstrarféð fæ ég á verð- bréfamarkaðnum.” Stjarnfræðirit eitt bað hana að skrifa grein um þetta málefni. Hún kallaði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.