Úrval - 01.10.1972, Qupperneq 52
50
ÚRVAL
fylkjum Bandarlkjanna, læknar skýri
opinberum heilbrigöisyf'rvöldum frá
kynsjúkdómatilfellum, en samt er
aöeins skýrt frá litlu broti sllkra til-
fella, kannske jafnvel ekki einu af
hverjum fimm. SHkt gæti táknaö, aö
kynsjúkdómafaraldurinn sé nú oröinn
sllkur hér á landi, aö hann nái til 2 1/2
milljóna Bandarikjamanna árlega.
Hryllilegt . . .já. En æpandi blaöa-
fyrirsagnir og óþægilegar skýrslur og
tölur viröast hafa mjög litla þýöingu,
fyrr en ÞÚ eöa einhver ástvinur þinn
sýkist af s.vfilis eöa lekanda. Þá viltu
skyndilega að fá aö vita sem
mest um kynsjúkdúma t þessari fyrri
grein af tveimur eru veittar grund-
vallarupplýsingar um sjúkdóma
þessa.
Þú ert stúlka, og þér þykir óskap-
lega gaman að leika tennis. Þú færð
hræðilegan magaverk dag einn, þegar
þú kemur af tennisvellinum. Þú finnur
til ógleði og kastar upp. Móðir þi
kallar á lækninn. Þú ert með hita. Við
talningu kemur fram há tala hvitu
blóökornanna. Þú finnur til eymsla
hægra megin I kviðarholinu, og þú
veröur vör við bólgu þar.
Læknirinn heldur, að þú sért ef til vill
með botlanga
bólgu og að gröftur hafi komizt út I
kviðarholið og framkallað lifhimnu-
bólgu. Þér er ekið á sjúkrahús i hvelli,
og þar ertu skorin upp. Það er ekkert
að botlanganum í þér, en eggjagöngin,
sem liggja að eggjastokkunum eru
„eldrauð, heit og aum”.
Þu erl rneö lekanaa. Þu iíiuiil ckki
trúa þvl. Þú hafðir aðeins einu sinni
leyft vini þínum að gera meira en aö
kyssa þig og kjassa. En sjúkdóms-
greiningarprófanir sýna bólgu af
völdum lekanda i kviðarholinu.
Sýkingin hefur breiðzt upp eftir leg-
göngunum, í gengum legopiö inn i
eggjagöngin og alla leið upp I hægri
eggjastokkinn.
Að vlsu getur penicillinið eða ein-
hver önnur lyf drepið sýklana. En
eggjagöngin eru bólgin og örum sett.
Læknirinn segir, að þú getir kannske
aldrei eignazt barn. Og þar sem þú
liggur í sjúkrarúminu, óskar þú
þess, að faðir þinn komi ekki i heim-
sókn til þln. Kvölin I augum hans er
sárari en kvölin I lfkama þlnum. Þú
hafðir orðið hrædd um, að þú yrðir
ófrisk eftir þessa einu „ástarnótt”, en
þú hefur haft tlðir slðan, og þú áleizt
þig þvl vera alveg örugga. Þér komu
kynsjúkdómar jafnvel alls ekki til
hugar.
Samkvæmt upplýsingum dr.
Nicholas J. Fiumara, forstööumanns
Deildar Kynsjúkdóma og annarra
smitnæmra sjúkdóma viö
Heilbrigöismálastofnun
Massachusttsfylkis er lekandi
algengasta orsök „ákafra” verkja I
kviöarholi meöal stúlkna á aldrinum
15-25 ára. Þessi bólga f eggja-
göngunum er kölluö „salpingitis” á
læknamáli. Um 8% þeirra stúlkna,
sem sýkjast, munu veröa þaö
alvarlega veikar, aö þaö þarf'að gera
skurðaögerð á þeim.
Þú ert 19 ára piltur, og þér þykir
gaman að sportbllum og
rokktónlist . . .og stelpum.
Um einni viku eftir „partl” upp-
götvarðu, að þegar þú kastar af þér
vatni, færðu óskaplega sáran verk I
getnaðarliminn. Þú finnur svo
óskaplega til, að þú dregur það I
lengstu lög að kasta af þér vatni. En
þegar þú verður loks að gera þaö, er
kvölin slik, aö þú fölnar og tár koma
fram I augu þér. Þú verður lika var við
graftarútferð, um leið og þú kastar af
þér vatni.