Úrval - 01.10.1972, Side 71
HVAÐ TAKNAR DRAUMUR ÞINN?
69
til þess að bjarga hjónabandinu með
þvi að ræða ástandið opinskátt og af
einlægni við eiginmann sinn.
Þriðja aðferðin til þess að hafa gagn
af draumum er að rannsaka þá i þvi
augnamiði að reyna að finna þar
leynda uppsprettu ýmissa erfiðleika,
sem snerta persónuleika okkar. Dæmi
um slika rannsókanraðferð er lýsing
og túlkun dr. Faradays á draumi, sem
hana- dreymdi oft. t draumnum
varð hún að velja á milli tveggja
húsa, nýtizkulegs húss, sem var að
mestu leyti úr gleri og stóð uppi á hæö,
og notalegs, litils húss niðri við
ströndina. Að hennar skoðun end-
urspeglaði draumurinn átök innra
með henni milli starfs utan heimilisins
(þ.e. glerhúsið) og húsmóðurhlut-
verksins (notalega húsið við strönd-
ina). Hún vildi geta skyggrizt
enn dýpra i hugskot sitt til þess að
uppgötva grundvallarorsakir þessara
átaka. Og þvi bað hún báða þætti
draumsins að lýsa sinni hlið átakanna,
að ræða um vandamálið við hana. Að
baki þessari rannsóknar— og
túlkunaraðferð liggur sú skoðun, að
allar draumsýnir og myndir séu i
kjarna sinum tjáning á hinum ýmsu
þáttum persónuleika dreymandans.
Þegar dr. Faraday leyfði húsinu á
ströndinni að „tala sinu máli”, skýrði
það frá þvi, að fjölskyldan, sem i þvi
bjó, óttaðist hafið og hinar reibu öldur,
sem ógnuðu öryggi þess. Hafið gaf sitt
svar með þvi að vera kyrrt og lygnt,
sem var þó ekki eðli þess. Deilur
þessar fengu dr. Faraday til þess að
gera sér grein fyrir þvi, að i átökunum
innra með henni milli strangrar sjálfs-
stjórnar og frjálsrar tilfinningalegrar
tjáningar hafði hún bælt niður tilfinn-
ingar sinar.
„Boðskapur draumsins varð mér
ljós,” skrifaði hún,,, þegar hafið, sem
táknaði tilfinningar minar, sagði: „Ég
hef rétt til þess að tjá mig.” Þá var
komið til minna kasta að gera eitthvað
I málinu.”
Þú verður að muna drauma þina,
eigir þú að geta ráðið i merkingu
þeirra. Draumarannsakendur hafa
tekið eftir þvi, að þrátt fyrir það, að
langflest fólk virðist dreyma á hverri
nóttu, man flest fólk drauma sina
aðeins þriðja hvern morgun að
meðaltali og annað fólk aðeins einu
sinni i mánuði eða jafnvel einu sinni
á ári. Og jafnvel dreymendur, sem
dreymir mjög oft, verða fyrir þvi, að
sýnir næturinnar svifa burt út vitund
þeirra, nema þeir reyni af öllum mætti
að halda i þær.
Skrifið draumana niður
Dr. Faraday hvetur til þess, að fólk
gripi til sjálfssefjunar i þessu efni með
þvi að segja við sjálft sig nokkrum
sinnum, áður en það sofnar: „Ég skal
ná draumi i nótt.” Hún ráðleggur fólki
einnig að hafa blað og blýant hjá
rúminu, svo að hægt sé að skrifa
drauminn tafarlaust niður, þegar það
vaknar. Auk sjálfs draumsins skaltu
hripa niður allar hugmyndir þinar um
það, hvaða merkingu þú leggur i
drauminn og hvaða tengsl þér fannst
þú kannast við i ýmsum hlutum hans.
Skoðaðu siðan þessar athugasemdir
þinar vandlega næsta dag og reyndu
að komast til botns I þeim af fremsta
megni með þvi að halda þig á þeirri
braut, sem þegar hefur verið stungið
upp á.
Talmudinn, trúarbók Gyðinga,
segir, að draumur, sem ekki hefur
verið skilinn, sé eins og óopnað bréf. A
hverri nóttu fáum við þýðingarmiklar
orðsendingar frá undirvitundinni.
Hvort sem við erum stödd þar i bifreið,
sem steypist niður bratta brekku, eða