Úrval - 01.10.1972, Side 87
tlRVAL
85
komiö saman um það, höfðu helzt
haldið að það hefði verið óðatæring.
Kvæntur hafði hann veriö. Það var það
eina, sem hafði verið alveg rangt hjá
honum, þvi um það, hvenær hann hefði
dáið var aldrei fullyrt, enda finnst mér
skiljanlegt, að honum hafi getað
skjátlazt þar, ef hann hefur ekkert
munað eftir sér fyrst eftir að hann kom
yfir um.
JÓGÚRTBYLTINGIN
MIKLA
’ógúrt, „súrmjólk
hinna siðmenntuðu”,
vií leggur heiminn undir sig
meö leiftursókn. Hún
% hefur afneitað fortiö sinni
J
*
*
é _ ..........
þegar hún var eínungis
fæða hugsjónamanna, til heilsubótar
og lækninga, og nú býður hún sig til
sölu sem eftirréttur og „milli
máltiða”, þægileg, ilmandi, hressandi,
grennandi — og ekki dýr. Þeim
rómantiskustu meöal fjölda nýrra
áhangenda hennar er þetta lostæti
geimaldarinnar, sem orð leikur á að
geti gefið neytendum útlit kvik-
myndastjarnanna, gert þá að methöf-
um I íþróttum, tágranna, með unglegt
útlit og kynorku allt fram á
tiræðisaldur. Neyzla á jógúrt hefur
margfaldazt á siðustu árum.
Jafnvel i háborg matarlistarinnar,
Frakklandi, hefur komið fram
fjölmennur hópur jógúrt—áhangenda.
Frakkar borða meira af jógúrt en
nokkur önnur þjóð. 1,7 milljarðar 200
gramma skammta fóru ofan i Frakka
sem eru um fimmtiu milljónir, áriö
1967, og nú hafa þeir brotið allar hefðir
með þvi að borða minna af osti. í
Englandi var jógúrt—framleiðslan
aðeins 200 þúsund skammtar i lok
annarrar heimsstyrjaldarinnar, en
nú er hún 200 milljónir. Danir borða
tæplega 22,5 milljónir skammta á ári,
en Bandarikjamenn verja um 2,2
milljörðum isl. króna til jógúrt—kaupa
á hverju ári, og i Kanada hefur
framleiðslan nærri fjórfaldazt siðan
1964.
Mjólk, sem súrnaði i höndum
hiröingja.
Jógúrt var i upphafi aðeins mjólk,
sem varð súr i höndum hirðingja
Persiu og Litlu—Asiu á langferöum
þeirra i sólarhitanum. Það var ekki
fyrr en heilbrigðispostular Vestur
Evrópu uppgötvuðu réttinn, aö hann
var hafinn til skýjanna sem
guðaréttur, sem lengdi lif manna,
héldi þunga þeirra i skefjum, strengdi
lina magavööva, fengi háriö til að
vaxa á sköllunum og veitti hundrað
ára mönnum barnalifeyri með eflingu
kynorkunnar.
Sfðan hefur jógúrt verið svipt töfrum