Úrval - 01.09.1973, Page 86

Úrval - 01.09.1973, Page 86
84 ÚRVAL að vera kolsvört. Stundum mjúk eins og súrmjólk, stundum í föstu formi og þá hörð sem grjót. Vísindamönnum er þessi leðja hins vegar sem safarík lesning í bókasafni, ótölulegur fjöldi alls konar upplýsinga, ritaðar á tungu- máli, sem þeir hafa lært að lesa. Áhugaverðast í þeirra augum eru kalksteingervingar smágerðra dýra og plantna sem lifðu fyrir milljón- um ára en líkamir þeirra hrúguðust síðan upp á botninum. Vísindamenn- irnir geta með því, að rannsaka undir smásjá líkami þessara forn- aldardýra, ekki einungis ákvarðað aldur þeirra í ármilljónum, heldur einnig séð hvar í hafsbotninum til- tekin smálífvera var á tilteknum tíma, við hvaða skilyrði lífveran lifði þá, hvers eðlis andrúmsloftið var og hve djúpt það vatn var sem lá undir. Margt er einnig hægt að læra af jarðefnum þeim, sem botninn mynda. Mörg svæði sjávarbotnsins eru þakin rauðum leir, sem mynd- azt hefur af ryki sem fokið hefur af meginlöndunum og í hafið, eða borizt til hafsins með ám og fljót- um. Mismunandi samsetning þess- ara leirlaga gefur oft vitneskju um af hvers konar landi leirinn hefur borizt. Hvort hann hefur fokið úr eyðimörkum, borizt úr gjósandi eld- fjöllum í eða við hafið. Það er ljóst, að það er ekki á- hlaupsverk að skapa nýja sögu haf- svæðanna úr öllum þeim aragrúa smálífvera, málm- og bergtegunda sem vísindamenn afla sér. Eini sam- anburðurinn sem hægt er að gera, væri að ætla sér að skrifa nýja menningarsögu löngu gleymds sam- félags með því að velta fyrir sér fáeinum múrsteinsbrotum úr löngu eyddu húsi eða skoða steingerð fót- spor í smásjá. Veltið fyrir yður þessari gátu: Elzta sýnishornið sem fannst á botni Miðjarðarhafsins, gaf til kynna að Miðjarðarhafið hafi eitt sinn verið angi af Indlandshafi, þar eð umrætt sýnishorn hafði aðeins fundizt þar. En ofan við þetta umrædda sýnis- horn, tveim mílum neðan við sjáv- arborð, rákust vísindamennirnir á lag af matarsalti, lagið var míla á þykkt og mikið af því í formi an- hydrats, sem aðeins verður þegar saltið hefur verið bakað í sól um langa hríð eða af öðrum ástæðum náð að hitna vel yfir 100 gráður á Fahrenheit. Af þessu gátu þeir ekki annað en dregið þá ályktun, að hafið hafi verið einangrað frá öðrum höfum jarðar fyrir sjö milljónum ára, með- an yfir stóð einn af mörgum á- rekstrum milli Evrópu og Afríku, en einmitt þessir árekstrar mynduðu Alpana. Þar sem Miðjarðarhafið var þannig einangrað, þá halda vísinda- mennirnir því fram að um eitt skeið hafi það alveg þornað upp! Síðan eða fyrir 5,5 milljónum ára, rudd- ist sjórinn aftur inn í hinn vatns- lausa dauðadal. Talið er að í þúsund ár hafi sjór úr Atlantshafinu verið að fylla upp hið nýja Miðjarðar- haf. Þessi vitneskja um Miðjarðarhaf- ið, verður að teljast hið markverð- asta í þeim nýju upplýsingum sem tekizt hefur að safna um þróun og myndun jarðarinnar. Vísindamenn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.