Úrval - 01.02.1975, Blaðsíða 22

Úrval - 01.02.1975, Blaðsíða 22
20 ÚRVAI Donald, að hann vantaði sjálfboða- liða til að hjálpa fólki. Hann ætl- aði ekki að biðja um framlög né undirskriftir, heldur aðeins starf. Hann flutti mál sitt af slíkum eldmóði, að jafnvel þeir, sem að- eins hringdu af einskærri forvitni, hrifust með og vildu taka þátt í starfinu. Hann ritaði svo hjá sér nöfn ný- liðanna og símanúmer og sömuleið- is, hvað þeir óskuðu helst að gera. Þegar læknarnir komust að því, hvað McDonald aðhafðist, létu þeir loka símanum, þar eð þeir óttuð- ust, að hann mundi ofreyna sig. Eftir að hann kom heim, hélt hann uppteknum hætti, og hringingarnar dundu yfir hann, ekki aðeins frá sjálfboðaliðum, heldur einnig og ekki síður frá þurfandi fólki víðs vegar að. Fyrsta fyrirspurnin kom frá blá- snauðri sex barna móður. Einhver hafði boðist til að gefa henni kæli- skáp, ef hún gæti náð í hann og komið honum fyrir. McDonald fór yfir listann sinn, fann þar nafn flutningamanns og hringdi til hans. Að verki loknu þennan dag tók hann að sér að flytja kæliskápinn, kom honum í lag, setti hann upp fyrir konuna og þáði að launum bjart bros. Rúmlega sjötug kona, sem farin var að sjá illa, hringdi og sagði, að nú ætti bókstaflega að loka íbúð- inni hennar og flytja hana nauð- uga brott, þar eð íbúðin væri heilsuspillandi af sóðaskap og nið- urníðslu. McDonald kvaddi nú til fjölda sjálfboðaliða: viðgerðamenn, hrein- gerningamenn, rafvirkja, trésmiði og skáta. Innan stundar var íbúðin komin í lag, og hætt við brottflutn- ing. Þessi viðgerð og hreingerning gerðist bókstaflega á einum degi. „Þurfandi fólk er oft fullt beiskju,“ segir McDonald, „þar eð það verður að þola alls konar auð- mýkingar og fyrirskipanir, sem því er þvert um geð.“ Allt, sem þurfti, var að hringja. Frá byrjun var allt með hraða á þessari hjálparstöð. Einu sinni hringdi ung húsfreyja og sagði æf, að heitavatnskraninn hefði bilað og vatnið flæddi um íbúðina. Mc- Donald náði í viðgerðarmann, sem var raunar lasinn en fór samstund- is upp úr rúminu og kom á auga- bragði öllu í lag. Einu sinni hrakti húsbruni fjöl- skyldu út á götuna. McDonald bað sjálfboðaliða að bjóða henni hús- næði. Fólkið varð auðvitað alveg undrandi en þáði samt boðið. Vinsældir þessa fyrirtækis Mc- Donalds urðu svo miklar, að bráð- lega skiptu nöfnin á hjálparlistum hans hundruðum. En þá birtist einnig óvelkominn gestur, fulltrúi frá tryggingarstofnuninni, sem full- yrti, að McDonald hlyti alveg eins að geta unnið eins og haft umsjón með svo víðtækri hjálparstarfsemi. Nú átti hann ekki að fá meiri greiðslur. Hann kvaðst ekki geta hætt við þetta fyrirtæki, sem hefði blómgast svo blessunarlega. Auk þess væri ekki víst, hve hjartað entist lengi. Vissulega fór hjartastyrk hans ekki fram. í ágústmánuði 1971, um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.