Úrval - 01.02.1975, Blaðsíða 27
LITAST UM Á GULLSTRÖND KALIFORNÍU
25
sporvagnana, fiskibryggjuna, ferj-
urnar, Alcatraz, þar sem ferðamenn
hafa leyst refsifangana af hóími,
nýársdrekana í Kínahverfinu, trúða
og tónlistarmenn á götuhorninu,
blómabúðir í verslunarhverfinu. —
Handan hafnarinnar, sem má kall-
ast fullkomin frá náttúrunnar
hendi, er Sausalito þar sem strand-
lengjan er stórfengleg; iðandi líf
á hafnarbakka Oakland borgar, þar
sem umferðin er enn meiri en í
San Francisco, og villur auðmann-
anna í hlíðum gulbrúnna hæðanna.
Hinum megin við Santa Cruz
liggur þjóðvegur 1 til suðurs um
grænmetisakra til Monterey, höf-
uðborgar Kaliforníu, hvort sem um
spænskar eða mexíkanskar stjórn-
ir var að ræða. Það er á þessum
slóðum, sem John Steinbeck lætur
landbúnaðarverkamenn sína starfa,
unnast og reisa loftkastala. Gömlu
niðursuðuverksmiðjurnar hafa lagt
upp laupana og í staðinn komið
veitingastáðir og verslanir, sem
byggja tilveru sína á ferðamönn-
um. Og í útjaðri bæjarins er hin
27 km langa og fagra strandgata.
Sunnan á skaganum er Carmel.
Þar var eitt sinn listamannaný-
lenda, en í dag byggir bærinn til-
veru sína á upphafinni fegurð,
húsum í enskum stíl, umferðar-
hnútum á sumrin og trúboðsstöð-
inni San Carlos de Borromeo de
Carmelo, sem nú hefur verið end-
ui'byggð og er fordyrið að sögu
Kaliforníu. Hér var það krossinn
en ekki sverðið, sem ruddi braut-
ina fyrir landnemana. Faðir Juní-
pero Serra var leiðtogi trúboða,
sem þekkti rvoru undir nafninu
„Sigurvegarar krossmarksins“,
hann gekk í land í Monterey árið
1770 og flutti síðar aðalstöðvar sín-
ar til Carmel. Þrátt fyrir lélega
heilsu og háan aldur (nær sjötug-
ur), gekk Serra þúsundir kíló-
metra meðfram ströndinni og stofn-
aði til samans 21 trúboðsstöð á
vegum fransiksusarreglunnar. Þær
urðu miðstöðvar margs konar
starfsemi: gistihús fyrir ferðamenn,
hafnir fyrir verslunarflota, þar
voru kyptar húðir og tólg frá býl-
um trúboðanna, þar fór fram trú-
arbragðakennsla og þar höfðu þús-
undir indíána lífsviðurværi sitt.
Tíu mínútna leið suður af Car-
mel trúboðsstöðinni er Point Iobos
fólkvangurinn, þar sem sjá má í
hnotskurn næ rallt, sem náttúran
býður fram á strönd Kaliforníu.
Þar eru klettamyndanir, víkur og
eyjar, þar sem ýmsir fuglar, sem
leita ætis í sjónum gera sér hreið-
ur, og þar eru sker og boðar, bar
sem brimið rís stöðugt. Sæljón eru
í sólbaði á klöppunum en oturinn
leikur franskan trúð í fjöruborð-
inu. í sjónmáli er hafsvæðið, sem
kaliforníski gráhvalurinn leggur
leið sína um. Þetta fimmtán metra
langa spendýr, sem getur orðið um
40 tonn, er stórfengleg sjón, þegar
hann siglir framhjá, blásandi vatns
súlu hátt til lofts, á leið sinni frá
ætisstöðvunum í Beringshafi til
burðarstöðvanna i Baja California
í mars og nóvember ár hvert.
Næstu 130 km til San Simeon
hangir þjóðvegur 1 í Santa Lucia
fjöllunum, sem rísa upp úr hafinu.
Þetta svæði heitir Big Sur, sem
jafnframt því að vera eitt hrjóstr-