Úrval - 01.02.1975, Blaðsíða 26
24
ÚRVAL
spöl með ströndinni til að fá hug-
mynd um þann æsandi spenning,
sem hlýtur að hafa gripið eirðar-
lausa landnemana, þegar þeir á
ferð sinni til vesturs komu að ystu
landamærum heimsálfunnar. Það
er eins og að ganga á vit sögunn-
ar í fylgd „Sigurvegara kross-
marksins" þegar þeir héldu inn í
ókunna landið og stofnuðu trú-
boðsstöðvar sínar. Að njóta einver-
unnar innan um rekaviðardrumba
á auðri strönd, að rölta upp þver-
brattar götur San Francisco, að
hverfa í fólksmergðinni í Disney-
landi. Komdu með til hinna þriggja
ólíku heima þessarar strandlengju
sem hver um sig hefur sína stemn-
ingu og séreinkenni.
FRÁ PELICAN BEACH TIL
BODEGA BAY. Strandlengjan frá
landamærunum við Oregon til fló-
ans norðan við San Francisco er
630 km á lengd. Þar sjáum við risa-
vaxin tré, stormblásna kletta og
sundurtættar minjar liðinnar tíð-
ar með bylgjulöðrið að baki. Hér
fór Kyrrahafið eitt sinn slíkum
hamförum að það slökkti ljósið í
vita, 60 m yfir sjávarmáli.
Á engum stað í heimi er jafn
mikið af Sequoia sempervirens eða
rauðtré, hinni harðgerðu amerísku
risafuru. Tré þessi sem fá gnægð
vatns á veturna (allt að 2800 mm)
og þokan heldur rökum á sumrin,
er stærsti gróður, sem menn þekkja.
Hæsta tréð er 112 m hátt og um-
mál stofnsins við jörð getur orðið
um sex metrar. Sum þeirra eru
meir en 2000 ára gömul.
Hér í norður Kaliforníu finnur
ferðamaðurinn allt, sem hugurinn
girnist. Sandströnd, skemmtigarða
og friðsæla reiti, þar sem unnt er
að hvílast í félagsskap hjartanna,
sem þar eru á beit. Það eru þeir
síðustu af norður-amerísku tegund-
inni wapiti. Það er unnt að finna
spýtur í sandinum eða kristalla í
fjöllunum, veiða lax eða tína bragð
góða kuðunga af steinunum við út-
fallið. Þjóðvegur 1, sem tengir sam-
an mestan hluta strandlengjunnar,
er ein fegursta leið í Ameríku.
Hann bugðast með sjónum, upp og
niður, stundum hulinn þoku, stund-
um er rokhvasst, en ávallt býðst
nýtt, hrífandi útsýni.
FRÁ BODEGA BAY TIL POINT
CONCEPTION. f áraraðir var ferj-
an eina beina sambandið milli San
Francisco og Marin héraðsins norð-
urundan. Það var álitinn ógerning-
ur að byggja brú yfir Goldan Gate
(Gullna hliðið), vegna hinna geysi-
legu sjávarfalla, sem hafa grafið 90
m djúpa rennu, ofsafenginna stór-
viðra og vegalengdarinnar, 1 30 m
landa milli. En þessar hindranir
voru yfirstígnar og Golden Gate
brúin var tilbúin í lok fjórða ára-
tugsins. Hún er næstlengsta óskipta
hengibrú í heimi og hvílir á sökkl-
um, sem ná 33 m niður fyrir sjáv-
armál. Fimmtíu og tvær milljónir
bíla og annarra farartækja fara um
hana árlega.
Opinn og breiður flóinn gefur
San Francisco sinn sérstaka sjarma.
Borginni hefur verið svo skáldlega
lýst af ritsnillingum og listamönn-
um að vel er hægt að álíta að bar
væri allt mögulegt. Og hér hafa
menn í raun og veru allar dásemd-
ir póstkortanna fyrir augunum: