Úrval - 01.02.1975, Síða 54
52
ÚRVAL
skálmaði ég rösklega burtu, þótt
ekki væri það auðvelt.
Nú voru ekki nema tíu mínútur
þar til ég átti að vera kominn í
vinnuna. Svo ég sneri mér að ung-
frú ,,Mjúköxl“ við innganginn og
sagði með röddu, sem endurspegl-
aði örvæntingu mína: „Hvað get-
urðu selt mér, sem er grænt og
kona, nokkum veginn á stærð við
þig, getur notað, og ekki er í stærð"
um. Hún hikaði ekki:
„Pils til að vefja utan um sig.“
„Já, takk.“
Nokkrum kvöldum seinna rétti
ég Liz öskju með fallegum umbúða-
pappír og sagði: „Til hamingju með
afmælið, elskan.“
Hún vó þetta í hendi sér og brosti.
Þetta gat alls ekki verið King
Squeeze. Hún tætti pappírinn af í
flýjti og hélt pilsinu upp. Síðan
vafði hún tveimur fallegum hand-
leggjum um háls mér. „En sætt!
Ég ætla að nota þetta í kvöld.“
Ég sá bara eftir því að hafa ekki
kallað á stelpurnar inn að horfa á.
Ég blístraði meðan ég þvoði mér,
en þegar ég kom niður, var búið
að kveikja á kertum á kvöldverð-
arborðinu. Besta postulínið okkar
glitraði á nýjum, grænum borð-
dúk, — borðdúk, sem kom mér ein-
kennilega kunnuglega fyrir sjónir.
„Sjáðu hvað dúkurinn fer vel við
silfrið," sagði Liz brosandi. „Þú
ert svo sniðugur! Hann er bara svo
skrýtinn í laginu. Ég hugsa að
þetta sé ein af þessum nýju, dönsku
hönnunum."
„Ja . . .“ sagði ég. „Þú getur
náttúrlega beitt ímyndunaraflinu
og búið þér til pils úr honum, sem
þú vefur utan um þig.“
„Já, heyrðu, það er ekki slæm
hugmynd. Það er að sjá, að ég sé
gift manni, sem hefur auga fyrir
fötum.“
„Einmitt!" andvarpaði ég. „Það
er lýsing á mér í hnotskurn."
☆
Piparsveinninn hafði heimsótt gifta systur sína til að líta á
nýja barnið hennar. Næsta dag spurðu vinir hans hann um barnið
og vildu fá nákvæma lýsingu hjá fámálugum frændanum.
„Hmm,“ tautaði hann. „Fíngerðar hrukkur, sléttrakaður, rauð-
þrútinn, — og drekkur eins og svampur."
R.D.
Ef þú vilt hugsa um, hvað þú ættir að gera fyrir aðra, mun
skapgerð þín annast sinn eigin þroska.
Skapgerð er aukaframleiðsla, en sérhver maður, sem helgar sig
menntun sjálfs sín vegna, verður ekki annað en spjátrungur.
Woodrow Wilson.