Úrval - 01.02.1975, Síða 112
110
stöðinni. Leit þeirra í farangurs-
geymslunni gekk fljótt og vel fyrir
sig. Interpol hafði upplýst, að
stærst þessara stolnu ítölsku verka
væri eitt málverk, sem mældist
tvisvar sinnur þrír metrar að flat-
armáli. Lögreglumennirnir höfðu
því augun opin fyrir stranga, sem
væri allt að þrír metrar á lengd.
Þeir fundu rúllu, sem var rúmir
tveir metrar á lengd, vafin inn í
teppi. Hana höfðu þeir með sér til
Scotland Yard. Þegar þeir höfðu
með varfærni vafið teppin utan af,
og síðan plastumbúðirnar, komu í
ljós fjögur Tavernamálverkanna.
Samtals að verðmæti um 570 millj.
króna.
Einhver úr Mafíunni hafði smygl-
að málverkunum úr Ítalíu uppi á
þaki íbúðarvagns. Hann kom þeim
alla leið til Lundúna, en gat ekki
fundið hentugri felustað, heldur
en hjá ítölskum hárskera, sem hann
þekkti.
Hárskerinn, sem var af strang-
heiðarlegri, vinnandi ítalskri fjöl-
skyldu kominn, hafði einungis
jánkað því að geyma teppin fyrir
kunningja sinn, eftir því sem hann
sagði lögreglunni. En þegar hann
tók rúlluna sundur, hafði hann
ÚRVAL
fundið verðmæt málverk með heil-
ögu myndaefni. Þótt hann óttaðist
Mafíuna, var hann þó enn hrædd-
ari um, að lögreglan mundi finna
málverkin í íbúð hans. Hann bjó
um þau aftur í teppunum og skil-
aði öllu af sér í farangursgeymslu
j árnbr autarstöð varinnar.
Fyrir réttinum í Old Baily við-
urkenndi hann, að hafa gert sig
sekan um að hafa í fórum sín-
um þýfi. Dómarinn sagði hon-
um, að Mafían gæti ekki starfað,
ef hún hefði ekki „aðstoðarmenn á
borð við þig til þess að losa sig
við þýfið“, og maðurinn var dæmd-
ur í fimm ára fangelsi. Mafíusend-
illinn var fyrir löngu hólpinn á
Ítalíu.
Dómurinn var alvarleg ábending
til Mafíuforingja, að þeir skildu
halda krumlunum burtu. Um leið
urðu þeir fyrir tilfinnanlegu tjóni,
þegar hald var lagt á stolnu mál-
verkin fjögur. Rétt eins og aðrir
alþjóðlegir listmunaþjófar lærðu
þeir, að það er mjög áhættusamt
að reyna að koma stolnum lista-
verkum í verð í Lundúnum. Það
má þakka leynilögreglumönnum
Scotland Yard í herbergi 265.
☆
„Dóttir mín er á þeim aldri, að það er sama hvað ég segi við
hana — hún svarar alltaf: Ó, mamma!“
☆
„Úg gæti alls ekki þolað hana Eddu — ef hún væri ekki besta
vinkona mín!“