Úrval - 01.02.1975, Page 135

Úrval - 01.02.1975, Page 135
STERKAR HENDUR 133 höfðu tæmt gildrurnar og beitt þær upp á nýtt, voru þeir orðnir svang- ir og reru heim á leið. Jackie reri líka. Hafflöturinn var ekki lengur sléttur, það var kominn dagur. Skarfur kom fljúgandi frá landi, aðeins tvö fet yfir haffletinum. Þeir lögðu upp árar til þess að skoða hann. Á hverjum morgni flaug þessi skarfur út að Skessun- um, en kom aftur á kvöldin og settist að í hreiðri sínu einhvers staðar uppi á landi. Hann flaug markvisst, með hálsinn teygðan fram eins og spjót. „Af hverju heldurðu, að makríll- inn komi ekki?“ spurði Jackie. „Það er eitthvað í sjónum," svar- aði Cormac. „Hann ætti að vera kominn," sagði Jackie. „Manstu í fyrra, þeg- ar þeir komu í þúsundatali? Þá var gaman.“ „Já, hann ætti að vera kominn, en það er eitthvað að.“ „Tigue Conneeley segir, að frönsku togararnir hafi veitt alla smásíldina. Heldurðu að það geti verið?“ „Þótt hver einasti frakki ætti einn togara, og þeir væru allir að veiða hér fyrir utan, gætu þeir ekki veitt alla smásíldina,11 svaraði Cor- mac. „Það hugsa ég ekki heldur," sagði Jackie fullorðinslega. „Manstu, þegar síldin kom í fyrra? Strönd- in var þakin af henni. Þær voru eins og litlir silfurmolar, sem börð- ust um.“ Og á eftir síldinni kom makríll- inn. Hann risti hafflötinn og fór svo geyst, að sumir þeirra syntu alla leið upp á land. Hafið var dularfullt. Það leit út fyrir að vera alveg tómt, en stundum var það iðandi af lífi. Nú var það tómt. Makríll var sjaldséður nú. Það hafði eitthvað komið fyrir hafið, þarna úti hjá Skessunum. HÚS JOYCE STÓÐ á hæðinni ofan við höfnina, sem var austan- vert, hlémegin á eyjunni. Höfnin var ekki annað en tveir hornréttir veggir úr steini og steinsteypu. Hafnarmynnið var aðeins átta fet á breidd, og um fjöru var aðeins tveggja feta dýpi. Þetta var góð höfn, en aðeins nothæf á flóði. Eyjarskeggjar geymdu þarna báta sína, og það var höfninni að þakka, að bátarnir voru ekki lengur úr striga. Áður en höfnin kom, voru allir bátar úr striga á trégrind, svo hægt væri að halda á þeim upp á land. Síðan höfnin kom var það ekki nauðsynlegt. Samt voru striga- bátar enn til. Sumum fannst það svo mikið öryggi að vita bátinn liggja heima við hús. ÞAÐ VORU AÐEINS tvö önnur hús á eynni. Hinum megin bjuggu þau Michael Reece og kona hans. Hann var að minnsta kosti áttræð- ur og mikill sagnaþulur. Konan hans var ung — aðeins sextug. Hann kynntist henni, þegar hann var fjárhirðir í Skotlandi, svo hún var ekki írsk, heldur skosk. Hún var kaþólsk og gerði gott brauð. Norðan á eynni var Conneeley- fólkið. Pat Conneeley átti sjö börn. Eilis Conneeley var þriðja í röð- inni. Andlit hennar var dálítið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.