Goðasteinn - 01.09.1967, Page 19

Goðasteinn - 01.09.1967, Page 19
hvítan hóf á afturfæti. Hefta viidi Jón gamli hestinn, þó í áhaldi væri og góðum haga. Jarpur Erlends var þarna fyrir, af hvaða á- stæðu man ég ekki. Jón rölti til hans og skoðaði hann lengi, æði þungur á svipinn. Ekki lét hann nægja að teyma hann á sléttum velli, heldur einnig upp og niður í móti. Tóku þessar athuganir hans langan tíma, en ekki sagði hann nokkurt orð. Um morguninn næsta býst Jón til heimferðar og biður Erlend ganga með sér og taka hestinn. Ég fylgdist með þeim, og var það látið afskiptalaust. Fljótlega kom Jón þeim jarpa í tal og ávítaði Erlend af miklum þunga fyrir meðferðina á honum. Erlendur kvað enga tilhæfu í átölum hans, og varð úr þessu hin harðasta senna á milli þeirra. Vann Jón engan bug á Erlendi, þó að ekki yrði heldur sagt, að hann færi halloka. Gengur nú Jón þangað, sem Jarpur er, og rekur hann á undan sér góðan spöl, á jafnsléttu og í halla, á fót og undan fæti. Urðu nú átölur hans allvísindalegar, þar sem hann kvað göngulag hestsins ekki dylja þá staðreynd, að honum hefði verið ofgert. Varð nú sókn af hálfu Jóns, örugg og óverjandi. Allir, sem voru með Jóni Ásmundssyni í ferðalögum, höfðu á orði, hversu snyrtilega hann bjó upp á hesta sína. Reiðskapur all- ur vandaður sem bezt mátti verða og að engu farið flausturslega, þegar hcstar voru tygjaðir undir bagga. Var hann því oft síð- búnari en margir aðrir að taka sig upp í áfanga, en var þó oftast fremstur í flokki lestamanna, er frá leið, því að tafir urðu engar við lagfæringar, allt sat eins og frá var gengið í upphafi. Unglingum þótti gott að vera með Jóni á Lyngum, ef eldri menn gerðu á hlut þeirra, og eru engin dæmi þess, að hann færi halloka í fangbrögðum við aðra. Hjörleifur Jónsson í Sandaseli hafði minnzt snarleika Jóns eitt sinn, er hann, þá unglingur, var með hon- um í lestaferð á Eyrarbakka. Einhvers staðar á leiðinni, þar sem þeir höfðu áning og tóku til nestis, bar að tvo menn, sem hófu að glettast við Hjörleif og annan ungling, sem í förinni var. Spratt Jón þá upp skjótt, bað menn þessa að láta alla í friði, greip þá um leið, báða í senn, og lagði við jörðu. Höfðu þeir sig burtu síð- an án frekari áreitni. Sigurbergur Einarsson bóndi í Kotey í Meðallandi minntist þess, að Meðallendingar voru í fjárrétt (almenning) í Skaftártungu. Goðasteinn 17

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.