Goðasteinn - 01.09.1967, Blaðsíða 87
Við höfum ferðazt langa leið
lífs á hættuslóðum,
ekkert skipbrot okkar beið,
umsjá guðs í stóðum.
Finnum nú við fótmál hvert,
að forsjón studdi á vegi.
Það er mestra þakka vert,
þegar hallar degi.
Fjórtán voru fjörborin,
föður og móður vandi,
sumum fækka svo sporin,
sjö á hvoru landi.
Sátt og glöð við sjáumst hér,
sem á fyrri dögum,
ung í sinni, eins og ber,
orð í ræðu lögum.
Stefán kætir marga menn,
mjög þó gráni hárin.
Fjörutíu telur tvenn
trítluð framhjá árin.
Mín er ósk og bróðurbæn,
blessun öll þér hlúi.
Framtíðin sem grundin græn
gæðum að þér snúi.
Góður vinur Goðasteins, Erlingur Filippusson grasalæknir, and-
aðist í byrjun þessa árs, 93 ára að aldri, eftir góða, annasama ævi.
Um áratuga skeið hélt hann merki móður sinnar á lofti við að líkna
veikum. mönnum, oft mcð undraverðum árangri. Hann var allra
Goðasteinn
85