Goðasteinn - 01.09.1967, Side 25
að sama skapi iðin. Merkiiegt bókmenntastarf var unnið í Holti
á þessum tíma. Þar urðu til fjölmörg ljóð, sem eru í röð hins bezta,
sem samtíð okkar hefur lagt í ljóðasjóð. Kom ég oft í smiðju
skáldsins og fylgdist með, hvernig hann mótaði og fágaði gull
móðurmálsins í ljóð og laust mál.
Uppiag og ögun gerðu sr. Sigurð að einum fremsta fulltrúa orðs-
ins listar á íslandi. Hann var hraðmælskur og minnið óvenju
traust. Kirkjuræður sínar flutti hann allajafna blaðalaust. Fór þar
saman frábærlega snjöll, skipuleg hugsun, vandaður flutningur og
dygg boðun Orðsins. Að sama skapi var annað kirkjustarf rækt.
„Enginn veit, hvað átt hefur, fyrr en misst hefur,“ segir gamalt
máltæki, en það hygg ég mig geta sagt með sanni, að yfirleitt hafi
Eyfellingar virt sr. Sigurð sem mann og prest. Mun kirkjusókn í
sveitum hafa verið óvíða betri en hjá honum. Fagnaðarauki var
að komum hans á heimili og mannfundi, þar sem hann jós af brunni
mælsku og þekkingar í viðræðum. Þá settu ræður hans mikinn svip
á nær hvern mannfagnað heimahúsa, ósjaldan með ívafi ljóðamála.
1 tólf ár átti ég heimili hið næsta sr. Sigurði og konu hans, Hönnu
Karlsdóttur, og minnist þess nábýlis mcð mikilli þökk. Ár eftir ár
kom ég á heimili þeirra hjóna til söngæfinga með kirkjukór sókn-
arinnar, og jafnan var okkur fagnað af fölskvalausri alúð og gest-
risni. Gatan milli Vallnatúns og Holts greri ekki þessi ár, fremur
en áður. Reyndist mér alltaf jafngott að bianda geði við húsráð-
endur. Sr. Sigurður hafði víða farið og mörgum kynnzt og var allra
manna skemmtilegastur í frásögn og samræðu. Naut maður þess
eigi hvað sízt í góðu tómi á heimili hans.
Sr. Sigurður varð samgróinn byggð sinni undir Eyjafjöllum. Við
höfðum vænzt þess að eiga hann enn um sinn að sóknarpresti og
sálufélaga, en nú er hann horfinn fyrir aldur fram þessi fjölgáfaði,
viðkynningargóði maður. Áfram mun hann þó lifa í verkum sínum
og góðri minningu okkar, sem um stund deildum með honum gleði
og sorg, innan kirkju og utan. f hug þakklætis, virðingar og góðra
óska er hann kvaddur.
Ritið Goðastcinn hclt úr hlaði með ljóði eftir sr. Sigurð Einars-
son. Það sendir nú ástvinum hans innilegar samúðarkveðjur.
Þórður Tómasson
Goðasteinn
23