Goðasteinn - 01.09.1967, Side 46

Goðasteinn - 01.09.1967, Side 46
Tilbú mig, herra, í traustri hlíf, trúlega geym þú sál og líf, lát þitt blóðstríð og þunga neyð, þyrnikórónu, vönd og deyð vera mitt skjól í vöku og blund, velnærandi á dauðastund, enn þegar líður lífið mitt, leið mig í dýrðarríkið þitt. Ég fel líkama, önd og sál, ástvini, börn, sjón, heyrn og mál, inngang líka og útgang minn, allsherjar guð, í faðminn þinn. Verða mun mér þar vært og glatt, við mig þinn sonur trúnað batt. í undum Jesú er mér rótt, angur hverfur og gjörvöll sótt. Réni þér aldrei æra og prís, eining heilög og þrenning vís. Lof sé þér fyrir þinn líknardóm, lofað af engla- og mannaróm, lofi þig himinn, lögur og lönd, lofi þig allt, sem dregur önd. Lofsæll drottinn, þú leystir mig, lofa vil ég því gjarnan þig. Eftirmáli Frú Sigríður Ólafsdóttir á Eystri-Sólheimum í Mýrdal færði mér í sumar handrit Einars Jóhannssonar að þjóðsögunni um Guð- rúnu á Dyrhólum og sálmi sr. Finnboga. Þótti mér það happafeng- ur, efnið varla víða að hitta, og ekki spillti það, að faðir minn er sjöundi maður frá sr. Finnboga. Einar Jóhannsson í Þórisholti í Mýrdal var fæddur 1796 en dó 44 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.