Goðasteinn - 01.09.1967, Qupperneq 52

Goðasteinn - 01.09.1967, Qupperneq 52
upp á Strút, er veðrið væri svo bjart og gott. Hann gæti þá sýnt mér svo mikið pláss þar, er ég væri ókunnugur en ætti máske oft eftir að fara um, sem líka kom fram. Við röltum nú í rólegheitum upp á hæsta tindinn. Ég hafði mjög gott af þeirri göngu, því útsýnið var mikið og félagarnir kunn- ugir og sögðu mér vel til. Af Strútnum sést suðaustur yfir Skaftár- tungu, Meðalland og Álftaver, út á haf og fjöli og jöklar til allra átta. Nú var farið að þykkna í lofti og kominn svartur bakki á Mýrdalsjökul, sem er hér skammt sunnar. Af Strútnum sáum við líka til smalanna, sem voru að koma í nánd, svo við héldum niður aftur. Gangnamennirnir komu um kl. 3 í verið með nokkuð margt fé, og þá fór að byrja að snjóa. Féð var nú rekið í réttina og hlaðið í dyrnar. Til okkar voru komnir þrír menn úr Skaftártungu, fjall- kóngur þeirra, Sigurður Sigurðsson, þá í Hvammi, og annar, sem ég man ekki nafn á. Þeir, sem fóru í Hólmsárbotna, sögðust hafa tapað einu lambi í Laugarhálsi, sem er austan við Hólmsá. Fjall- kóngurinn bað mig að koma með sér og vita, hvort við fyndum lambið, þótt nokkuð væri farið að drífa. Leið okkar lá inn undir laugarnar, þar sem er sjóðandi hver og víða volgrur. Þekkti ég þar alveg umhverfið eftir draumi, sem mig hafði dreymt nokkru áður en ég fór þessa ferð, en aldrei hafði ég komið þar í vöku. Við sá- um hilla undir lambið upp á Laugarhálsi. Ég fór af baki, komst upp á hálsinn og bak við lambið, án þess það sæi mig. Það hljóp svo suðvestur af hálsinum, er það varð vart við mig, og ég á eftir og gat gripið það, er það var að komast að ánni. Við reiddum það svo heim í réttina um kvöldið, og var þá komin ákafa drífa. Er litið var út morguninn eftir, var ófagurt um að litast, allt á bólakafi af snjó og sama hríðarkófið, svo varla grillti í Strútinn rétt hjá okkur. Það var því hinkrað við um stund. Á níunda tím- anum birti til og sást í loft. Var nú farið að ná í hestana, sem hímdu þarna skammt frá. Aðrir fóru að draga austanféð út úr réttinni. Ekki var það efnilegt að grafa reiðinga og annað dót upp úr snjónum. Nú var lagt af stað og til allrar ólukku farin gatan norðan við Strútinn, því snjókoman var af suðri og hafði skafið norður af 50 Goðasteinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.