Goðasteinn - 01.09.1967, Page 55

Goðasteinn - 01.09.1967, Page 55
Á Króknum gil, þar sem við töldum víst, að okkar biðu hestar og biti, en það brást okkur herfilega, menn og hestar voru á bak og burt, er við komum í Hvanngil. Þá voru sum lömbin orðin anzi löt, og endaði með því, að við urðum að fara að bera lamb og lamb. Áfram sig- um við, þó hægt færi, vestur að Torfafit, en þar náðum við loks- ins í mannskapinn, sem hafði áð þar og var að leggja af stað aftur. Létum við þá féð eftir, hlupum að lestinni, kipptum skrínum okk- ar ofan og fengum okkur matarbita, því nú höfðum við nóga mat- arlyst. Ekki voru hestamennirnir hrifnir af þeirri töf, því dagur var að kvöldi kominn. Hafðist þó að koma öllu í réttan náttstað í Króknum. Nú var eftir að smala einn dag fram í Dal, og gerðist ekki margt sögulegt. Þegar kom fram fyrir Hungurskarð, voru þrír menn sendir í Austurdal. Er þá farið sem sagt beint upp allar brekkur, upp undir Tindfjallajökul. í þessari göngu var einn maður vel kunnugur, annar lítið eitt kunnugur og ég alókunnugur. Nokkur snjómugga var, er hærra kom. Við þrömmuðum upp Goðasteinn 53

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.