Goðasteinn - 01.09.1967, Side 57

Goðasteinn - 01.09.1967, Side 57
Einar Runólfsson á Háamúla: Jarðskjálftasumaríð Sumarið 1896 hefur verið nefnt jarðskjálftasumarið. Mér er það minnisstætt. Þá var ég við trésmíðanám hjá Samúel Jónssyni á Eyr- arbakka. Þetta sumar var hann ráðinn til smíða á allmörgum stöðum á Bakkanum og upp um sveitir. Sumarvinnan hófst upp úr vertíðarlokum með smíði á íbúðar- húsi fyrir Jón Jóhannsson. Ekki var því húsi lokið um vorið, því að margt kallaði að. Um þessar mundir hafði Samúel tvo lærlinga. Þessu næst var farið upp í Sandvíkur og unnið bæði í Stóru- og Litlu-Sandvík. 1 Stóru-Sandvík höfðu þá lengi búið Magnús Bjarna- son og Kristín Hannesdóttir, en Hannes sonur þeirra hafði fest ráð sitt þetta vor, svo nú var þörf fyrir rýmri húsakynni. Úr þessu bættu þeir feðgar með því að reisa frambæjarhús með stofu og gangi. í Litlu-Sandvík bjó um þessar mundir Þorvarður hreppstjóri Guð mundsson. Hjá honum hafði Samúel, nokkrum árum áður, smíðað íbúðarhús allmikið úr timbri. En að þessu sinni var það heyhlaða, sem Þorvarður kom sér upp. Hún var með járnþaki og veggir að nokkru járnklæddir. Hlaða þessi var í stærra lagi, eftir því sem þá gerðist. Það voru viðbrigði að koma í Sandvíkurnar af Bakkanum. Þarna var nýnæmi á borðum, laxahausar og sjóbirtingur, og þá þótti okk- ur lærlingunum betri laxasúpan í Sandvík heldur en vatnsgrautur- inn á Bakkanum. Þegar verkum var lokið í Sandvíkum, lá leiðin upp í Grímsnes, að Vaðnesi. Þar átti að reisa stofuhús með gangi (bæjardyrum). Það' Goðasteinn 55'

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.