Goðasteinn - 01.09.1967, Side 61

Goðasteinn - 01.09.1967, Side 61
var óvarlegt að treysta, ef framhald yrði á jarðskjálftunum. Og það voru fleiri en hann, sem stóð stuggur af grjótveggjum og gripu til ýmissa úrræða. Samúel kom sér upp skýli úti á túni, þar sem nú stendur prestshúsið. í skýlið útvegaði hann sér nokkrar járnplötur og borðarenglur. Skýlið var með rislagi, strigaklætt á stöfnum. Þarna hafðist Samúel við með fólk sitt, meðan jarðskjálftarnir stóðu. Þótt seint væri risið úr rekkju þennan dag, nægði hann þó til að reisa skýlið og flytja í það nauðsynlegan aðbúnað. Þegar hér var komið, hófst hið fyrirhugaða starf á Bakkanum. Hjá Guðmundi á Háeyri var reist viðbygging við íbúðarhúsið, og svo var fuilgert hús Jóns Jóhannssonar. Þegar við vorum komnir að Háeyri, fóru að berast fréttir af slysförum af völdum jarðskjálft- anna og spjöllum, er urðu á bæjarhúsum viðsvegar uppi um svcitir. Guðmundur á Háeyri sat sig ekki úr færi með að hafa tal af ferða- mönnum, þegar tíðinda var von, eins og þá var ástatt. Hann sagði okkur svo það, er fréttnæmt var. Eina frétt sagði Guðmundur okkur, sem hvorki honum né okk- ur þótti trúleg. Svo átti að hafa borið við á bæ einum á Rangár- völlum eða Landi, þegar einn jarðskjálftakippurinn reið yfir, að rófurnar í kálgarðinum losnuðu og sneru skottunum upp. Ekki get ég greint frá, hve margir kippirnir urðu, áður yfir lauk, en glöggt man ég eftir fjórum og hvar ég var staddur hverju sinni, en vafalaust eru til skráðar heimildir fyrir því hve margir þeir voru. Eitt var sérkennilegt við jarðskjálftana þetta sumar: kippirnir riðu yfir á vissum tímum sólarhringsins, klukkan hálf ellefu og hálf fimm, ýmist kvölds eða morgna. Það var líkast sem þessi stundvísi jarðskjálftakippanna væri í skyldleika við tímasprengjur spellvirkja úti í löndum. Eða hvað vilja jarðfræðingar vorir segja um það? Sept. 1958. Höfundur dó 1961, sbr. Goðastein, 1. hefti 1966. Goðasteinn 59

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.