Goðasteinn - 01.09.1967, Page 68

Goðasteinn - 01.09.1967, Page 68
ið með vöndinn og berjið á bakið á mér, helvítis draugurinn er að hengja mig.“ Skráð eftir sögn frú Geirlaugar Filippusdóttur frá Kálfafellskoti, en hún nam af móður sinni, Þórunni Gísladóttur grasakonu. Til samanburðar cr birt frásögn Einars Runólfssonar á Háamúla um sama efni, sem að nokkru hefur birzt áður á prenti (Lesbók Morg- unblaðsins 1958, bls. 406-7). Sagan er væntanlega um Beintein Stefánsson í Arnarfelli í Krísuvík. Rinar Runólfsson á Háamiila: Verskrínuhvarfið í Krísuvík Sjór hefir lengi verið sóttur á Suðurnesjum og öðrum verstöðv- um við sunnanverðan Faxaflóa, og þangað fóru menn víða. að til sjóróðra. Ýmist réðust menn þangað frá haustnóttum til vetrar- vertíðarloka eða einungis yfir vetrarvertíðina, og mun það hafa verið algengara. En hvort sem heldur var, þá þurftu menn að koma færum sínum í verstöðina að hausti. Færur var einu nafni nefnt það, er menn þurftu að sér að hafa yfir vertíðina og að heiman var flutt. Hér verður getið einnar haustferðar ,er farin var með færur út- róðrarmanna austan úr Meðallandi til Suðurnesja, og sagt frá þeim „dilk, er hún dró á eftir sér“: Aðalflutningurinn var verskrínan, en í henni átti að vera: tveir fjórðungar af smjöri og smálki, er gerð- ur var úr heilum sauðarkropp (sauður að öllum ketum). Fátt verður sagt af haustferð þessari, aðeins getið eins nátt- staðar, en hann var í Krísuvíkurhverfi. Ekki er kunnugt, hve marg- ir menn voru í þessari ferð. Farangri sínum komu þeir fyrir í skemmu á einhverjum bænum þar í hverfinu, um nóttina. Meðan ferðamenn voru í svefni þessa nótt, þá gerðist það eina, er í frá- sögur hcfir verið fært af ferðalaginu. 66 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.