Goðasteinn - 01.09.1967, Page 73

Goðasteinn - 01.09.1967, Page 73
Keldunúpi gaf safninu strokk, smíðaðan af Bjarna Sverrissyni á Melhól í Meðallandi, kjörgrip á sínu sviði. Hann er girtur með tíu trégjörðum og vantar þó eina. Úr búi Einars Pálssonar á Hörgs- landi er strokkur með ellefu trégjörðum, smíðaður af Einari Ólafs- syni á Slýjum í Meðallandi, afa Einars Einarssonar, er til skamms tíma var djákni í Grímsey. Um aldir hafa allir bullustrokkar íslendinga víst verið af svip- aðri gerð, aðeins mismunandi stórir. Engin viss regla var þó um gerð bulluhaussins, nema hvað hann varð jafnan að laga sig eftir strokknum, sem hann var smíðaður í. Smiðirnir settu hann götum og skorum nokkuð eftir sínu höfði. Er það ritgerðarefni út af fyrir sig, að gera því efni skil. Uppruni strokksins er aftur í grárri forneskju. Þjóðsaga og sann- fræði segja, að rjómi hafi fyrst verið skekinn í skinnbelgjum, en höfundur bullustrokksins er áreiðanlega einn hinna nafnlausu í framfarasögu þjóðanna. Byggðasafnið í Skógum á einn dvergstrokk, ef svo mætti segja.. Ætla ýmsir hann fremur leikfang en nytjagrip. Engan veginn er hann þó einstæður hérlendis, því strokkar af svipaðri stærð eru nokkrir til í söfnum og komu að góðum notum á kotbúum. Strokk- ur Skógasafns, sem hér um ræðir, lætur að sjálfsögðu lítið yfir sér og er vart ásjálegur, en ekki er hann allur, þar sem hann er séður. Frú Gróa Sigurðardóttir frá Hvoli í Fljótshverfi eignaðist hann að' gjöf frá móður sinni, Guðleifu Jónsdóttur frá Teygingalæk, sem lengi bjó á Hvoli, gift Sigurði Jónssyni bónda þar. Til safnsins er hann kominn að gjöf frá síðasta eiganda. Ber hann nú safnnúmer S, 315. Hann er 33,5 cm á hæð, þvermál við op 15 cm, þvermál við' botn um 10 cm. Hann er nú með nýjum trégjörðum, settum á af safnverði. Á seinni árum var hann járngirtur,og hafa gjarðirnar ryðlitað stafina. Allur er strokkurinn nokkuð tærður og eyddur af elli og sliti, og víða laggstokkinn. Þykkt stafa að neðan er 8 mm, að ofan 2 mm, víðast. Strokklok, bulluskaft og bulluhaus eru áreið- anlega smíðuð fyrir skömmu. Strokkurinn sjálfur er smíðaður úr greni. Og þá er k.omið að sögunni: Fyrsti eigandi strokksins, sem um er vitað, var Davíð Jónsson, er nefndur var Mála-Davíð, d. 5. Goðasteinn 71

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.